Menning

List­ræn og líf­leg starf­semi í gömlu Á­burðar­verk­smiðjunni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það er fjölbreytt starfsemi, listrænt líf og fjör í Áburðarverksmiðjunni.
Það er fjölbreytt starfsemi, listrænt líf og fjör í Áburðarverksmiðjunni. Áburðarverksmiðjan

Í Gufunesi, þar sem Áburðarverksmiðja ríkisins var áður, má nú finna fjölbreytta starfsemi. Í einni byggingunni hafa listamenn tekið sér bólfestu. Listamaðurinn Narfi Þorsteinsson og kvikmyndagerðamaðurinn Sindri Steinarsson gerðu myndband um starfsemina sem má sjá hér í pistlinum.

„Byggingin hefur fengið nafnið Áburðarverksmiðjan, vitaskuld með beinni skírskotun í fyrri starfsemi, en ekki síður í þá grósku sem þar er núna. Segja má að byggingin sé áburðurinn sem grasrótin þarf til að vaxa. Í myndbandinu er farið yfir í grófum dráttum allt það sem á sér stað innan veggja Áburðarverksmiðjunnar frá degi til dags,“ segir í fréttatilkynningunni. 

Narfi Þorsteinsson segir að verkefnið hafi einkennst af einstökum tíma og hann hafi viljað gera því góð skil. 

„Undanfarin þrjú ár hef ég, ásamt fleirum, haft aðsetur í einni byggingu gömlu Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi. Þetta hefur verið einstakur tími sem hefur einkennst af nýjum kynnum, stórum hugmyndum, miklum möguleikum og ótrúlegri framkvæmdagleði. 

Það er ekkert sjálfsagt að svona geti orðið til og þess vegna langaði okkur að gera starfseminni í húsinu smá skil. Til þess hafði ég samband við góðan vin minn, Sindra Steinarsson kvikmyndagerðarmann. 

Upphaflega stóð til að færa glærukynningu sem við höfðum gert yfir á myndbandsform og tveir vinnudaga áætlaðir í það. Núna, þremur mánuðum seinna, er myndbandið loksins tilbúið og er gott betur en glærukynning.

Þetta er nýja ÁBURÐARVERKSMIÐJAN og það sem fram fer í henni,“ segir Narfi. 

Myndbandið má sjá hér:

Klippa: ÁBURÐARVERKSMIÐJAN

Nýja Áburðarverksmiðjan samanstendur af:

Verkvinnslunni: Verkstæði, verkefnarými og listastúdíó

Slökkvistöðinni: Vinnustofa arkitekta og sýningarrými fyrir rýmislist

Gufunes Radíó: Hljóðver, framköllunarstúdíó og hljóðfæraverkstæði

„Augljóst er að mikil vinna hefur verið sett í að aðlaga gömlu verksmiðjurýmin að nýrri starfsemi. En gróskan leynir sér ekki. Innan um veggi Áburðarverksmiðjunnar eru haldnar sýningar og viðburðir. Þar er tekin upp tónlist og stundaðar æfingar. Myndlistarmenn vinna að verkum sínum og hönnuðir þróa hugmyndir sínar.“

Það eru ýmsir viðburðir í Áburðarverksmiðjunni og hefur mikil vinna og mikill metnaður verið lagður í starfsemina.Áburðarverksmiðjan

Af verkefnum sem þar hafa verið unnin má nefna Hamphús Lúdika Arkitekta, þar sem er verið að prófa hvort nýta megi iðnaðarhamp sem byggingarefni hérlendis.

„Til dæmis rúststeina, sem útbúa skúlptúra úr niðurrifnum húsum og skoða hvort megi nýta betur múrbrotsúrgang; Skiltamálun Reykjavíkur sem sérhæfir sig í handmáluðu letri og myndmáli á stóra sem smáa veggi - svo eitthvað sé nefnt. Þarna hafa einnig hljómsveitir á borð við Ham og Apparat æfingaaðstöðu.“ 

Áburðarverksmiðjan býður svo sannarlega upp á fjölbreytni og eru ýmis verkefni í þróun þar. Áburðarverksmiðjan

Hér má sjá myndbandið á streymisveitunni Youtube og hér má fylgjast betur með verkefninu á Instagram


Tengdar fréttir

Vilja vekja athygli á því að rusl er gull

RUSL Fest er lista- og hönnunarhátíð sem haldin verður dagana 27. júní - 2. júlí næstkomandi í Gufunesi, nýju hverfi skapandi greina í Reykjavík. Blaðamaður hafði samband við Narfa, einn af forsvarsmönnum hátíðarinnar, og fékk að heyra nánar frá ferlinu á bak við RUSL Fest.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×