Barcelona tíma­bundið í annað sæti eftir stór­sigur

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Börsungar skoruðu fjögur í dag.
Börsungar skoruðu fjögur í dag. EPA-EFE/Andreu Dalmau

Barcelona lagði Getafe örugglega í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Lokatölur í Katalóníu 4-0 heimaliðinu í vil.

Börsungar hafa átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og hefur Xavi, þjálfari liðsins, ákveðið að láta gott heita að tímabilinu loknu. Það var þó ekki að sjá að félagið ætti erfitt uppdráttar í dag en Getafe átti aldrei möguleika í dag.

Brasilíski vængmaðurinn Raphinha kom Barcelona yfir eftir sendingu Jules Koundé þegar tuttugu mínútur voru liðnar. Það var eina mark fyrri hálfleiks en aðeins voru átta mínútur liðnar af síðari hálfleik þegar Börsungar gerðu svo gott sem út um leikinn. João Félix með markið eftir sendingu Andreas Christensen.

Frenkie de Jong gulltryggði svo sigurinn nokkrum mínútum síðar eftir undirbúning Raphinha. Það var svo í uppbótartíma sem Fermín López bætti fjórða markinu við, lokatölur 4-0.

Sigurinn lyftir Barcelona upp í 2. sæti La Liga með 57 stig, fimm stigum minna en topplið Real Madríd sem á leik til góða. Girona er svo í 3. sæti með 56 stig og á einnig leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira