Diogo Jota frá í marga mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2024 15:12 Diogo Jota lá óvígur eftir á vellinum í fyrri hálflfeik gegn Brentford, vegna hnémeiðsla. Getty/Justin Setterfield Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að liðið verði án portúgalska framherjans Diogo Jota næstu mánuðina.
Jota meiddist í leik Liverpool á móti Brentford í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn var. Jota meiddist á hné og var tekinn af velli á börum. Það var strax ljóst að meiðslin væru alvarlega sem hefur síðan komið á daginn. „Jota verður frá í marga mánuði,“ sagði Jürgen Klopp á blaðamannafundi fyrir leik Liverpool liðsins á móti Luton annað kvöld. Liverpool manager Jurgen Klopp says Diogo Jota will be out for "months" with a knee problem pic.twitter.com/UAY7pb3bTU— Sky Sports News (@SkySportsNews) February 20, 2024 „Ég gæti ekki sagt ykkur hver tímaramminn hans sé þótt ég vildi gera það. Svona er þetta bara. Þegar þú ert ekki með þessa leikmenn þá borgar sig ekki að velta þessu fyrir sér,“ sagði Klopp. Jota var frábær í fjarveru Mohamed Salah og var kosinn besti leikmaður janúarmánaðar. Hann er með 14 mörk og 4 stoðsendingar í 18 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili. Trent Alexander-Arnold er líka frá vegna meiðsla og þeir missa báðir af úrslitaleik enska deildarbikarsins á móti Chelsea á Wembley á sunnudaginn. Það er líka ólíklegt að Curtis Jones geti tekið þátt í leiknum en hann fór líka út af meiddur á móti Brentford. Brasilíski markvörðurinn Alisson er líka meiddur og Klopp býst ekki við honum til baka á næstunni. Another setback I will fight to be back as soon as possible #YNWA pic.twitter.com/pAyYNkPNXP— Diogo Jota (@DiogoJota18) February 20, 2024
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fleiri fréttir Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjá meira