Lífið

„Stærsta kakan sem ég er búinn að bíða lengi eftir komin í ofninn“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Jói Fel er eðli málsins samkvæmt himinlifandi með fregnirnar af væntanlegu barnabarni.
Jói Fel er eðli málsins samkvæmt himinlifandi með fregnirnar af væntanlegu barnabarni. Vísir/Vilhelm

Einn frægasti veitingamaður landsins Jóhannes Felixsson, betur þekktur sem Jói Fel er að verða afi. Hann greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram.

„Þá er stærsta kakan sem eg er búinn að bíða lengi eftir komin í ofninn. Haldiði ekki að ég sé að verða afi fljótlega,“ skrifar Jói í færslunni á Instagram.

Jóhannes hefur undanfarin tvö ár rekið veitingastaðinn Felino í Laugardalnum. Hann sagði frá því í einlægu viðtali þegar staðurinn var opnaður að hann hefði farið í gegnum erfiða reynslu þegar bakaríkeðja hans fór í þrot árið 2020.

„Nú er bara seinni helmingurinn byrjaður hjá mér,“ sagði Jói á sínum tíma aðspurður um fyrri rekstrarvanda. „Það var bakstur í fyrri helming og nú tekur veitingareksturinn við.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×