Íslenski boltinn

Smit orðinn leik­maður KR

Sindri Sverrisson skrifar
Guy Smit lék síðast með liði ÍBV sem féll í fyrra.
Guy Smit lék síðast með liði ÍBV sem féll í fyrra. Vísir/Anton Brink

Hollenski markvörðurinn Guy Smit er genginn til liðs við KR og hefur samið við félagið til eins árs.

Á síðustu leiktíð vörðu Norðmaðurinn Simen Kjellevold og Aron Snær Friðriksson mark KR en þeir eru báðir farnir frá félaginu.

Smit var einnig í sigti nýliða Vestra en hefur nú valið KR sem verður fjórða íslenska liðið sem hann spilar fyrir.

Smit, sem er 28 ára gamall, lék fyrst á Íslandi sumarið 2020 með Leikni Reykjavík og var þar í tvö ár en fór svo til Vals þar sem hann spilaði sumarið 2022. Hann var svo að láni hjá ÍBV á síðustu leiktíð en varð samningslaus í vetur.

Smit fær leikheimild með KR á morgun og verður því gjaldgengur með liðinu í Lengjubikarnum á fimmtudagskvöld þegar liðið mætir Fjölni í Egilshöll. Hinn tvítugi Sigurpáll Sören Ingólfsson hefur varið mark KR-inga í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×