Fótbolti

Glódís Perla til­nefnd í lið ársins

Dagur Lárusson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir er sannkallaður klettur í vörn Bayern München.
Glódís Perla Viggósdóttir er sannkallaður klettur í vörn Bayern München. Getty/Catherine Steenkeste

Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður og fyrirliði Bayern Munchen, hefur verið tilnefnd í lið ársins hjá EA Sports.

Glódís Perla spilaði virkilega vel fyrir Bayern á síðastliðnu ári en hún vann deildina með liðinu síðasta vor ásamt því að vera gerður fyrirliði liðsins á þessu tímabili.

Glódís hefur nú verið tilnefnd í lið ársins hjá EA Sports sem varnarmaður ásamt fimmtán öðrum leikmönnum.

Sjá má allar tilnefningarnar á fésbókarsíðu EA Sports hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×