Fótbolti

Glódís í 42. sæti yfir bestu leik­menn síðasta tíma­bils

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir var gerð að fyrirliða Bayern München í sumar.
Glódís Perla Viggósdóttir var gerð að fyrirliða Bayern München í sumar. getty/Catherine Steenkeste

Fyrirliði íslenska fótboltalandsliðsins og Bayern München, Glódís Perla Viggósdóttir, er í 42. sæti á lista Goal.com yfir fimmtíu bestu leikmenn síðasta tímabils. Lesendur vefsíðunnar völdu listann.

Í umsögn Goal um Glódísi er sagt að hún hafi átt frábært tímabil 2022-23 og verið besti leikmaður Bayern. Jafnframt segir að Glódís hafi verið sem klettur í vörn Bæjara sem urðu þýskir meistarar og komust í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

Racheal Kundananji er á toppi listans þrátt fyrir að spila aðeins fyrir fimmta besta lið spænsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, Madrid CFF.

Kundananji var næstmarkahæsti leikmaður spænsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Sá markahæsti, Asisat Oshoala hjá Barcelona, er í 2. sæti á lista Goal. Hin kólumbíska Linda Caicedo, sem leikur með Real Madrid, er svo í 3. sætinu.

Lista Goal.com má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×