Íslenski boltinn

„Þetta er frá­bært lið“

Sindri Sverrisson skrifar
Valdimar Þór Ingimundarson vill fagna bikurum eins og þeim sem hann stóð við hlið í Víkinni í dag.
Valdimar Þór Ingimundarson vill fagna bikurum eins og þeim sem hann stóð við hlið í Víkinni í dag. vísir/Sigurjón

Valdimar Þór Ingimundarson snýr aftur í íslenska boltann á næsta ári, nú sem Víkingur, eftir fjögur tímabil í Noregi. Hann er mættur í Víkina til að vinna titla.

Valdimar, sem er uppalinn Fylkismaður, snýr heim til Íslands aðeins 24 ára gamall en segir það einfaldlega hafa heillað mikið að ganga í raðir besta liðs landsins, sem spila mun í undankeppni Meistaradeildar Evrópu á næsta ári.

Hann lék áður með Strömsgodset í efstu deild Noregs en síðustu tvö ár með Sogndal í norsku 1. deildinni, þar sem hann skoraði sjö mörk á hvorri leiktíð.

„Ég er búinn að vera núna í 1. deildinni í tvö ár og fór því að hugsa um að gera eitthvað annað. Víkingur kom upp snemma, og er í Evrópukeppni og svona, svo það heillaði að koma heim og spila hérna í staðinn fyrir að vera úti,“ sagði Valdimar við Vísi í dag, eftir að Víkingar kynntu þrjá nýja leikmenn til leiks. 

Hann segir fleiri kosti vissulega hafa verið í stöðunni fyrir sig:

„En þetta var aðallega Víkingur. Maður heyrði alveg í fleirum en það fór ekki jafnlangt og með Víkingi. Það er margt [sem heillar við Víking]. Þeir eru búnir að gera mjög vel með hópinn og allt í kringum klúbbinn. Þeir sýndu það á síðasta ári þegar þeir völtuðu yfir deildina. Þetta er frábært lið,“ sagði Valdimar sem sjálfur hefur mikið fram að færa:

„Ég ætla rétt að vona það. Ég held að ég sé góð viðbót fyrir liðið og svo er það bara mitt að sanna það,“ sagði Valdimar, staðráðinn í að vinna titla í Víkinni.

„Ég hef unnið 1. deildina en það væri gaman að vinna efstu deildina hérna heima og vonandi bikarinn líka.“

Klippa: Valdimar mættur í Víkina

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×