Juventus á toppinn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Juventus fagna sigrinum.
Leikmenn Juventus fagna sigrinum. Valerio Pennicino/Getty Images

Juventus er komið á kunnuglegar slóðir í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Eftir 1-0 sigur á ríkjandi meisturum Napoli er Juventus nefnilega komið á topp deildarinnar.

Meistarar Napolí hafa ekki fundið taktinn til þessa á leiktíðinni en það var samt sem áður búist við hörkuleik þegar liðið sótti Juventus heim. Leikurinn var stál í stál í fyrri hálfleik og staðan því markalaus.

Snemma í síðari hálfleiks skoruðu heimamenn hins vegar það sem reyndist vera sigurmarkið. Andrea Cambiaso lyfti boltanum þá inn á teig og Federico Gatti gerði sér lítið fyrir og skallaði boltann í netið af stuttu færi. Staðan orðin 1-0 og reyndust það lokatölur á Allianz-vellinum í Torínó í kvöld.

Juventus er komið á topp deildarinnar með 36 stig en Inter er með stigi minna og leik til góða í 2. sætinu. Napoli er í 5. sæti með 24 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira