Sport

Dag­skráin í dag: Ís­land mætir Portúgal ytra, For­múla í Vegas og margt fleira

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hvað gerir Cristiano Ronaldo gegn Íslandi í dag?
Hvað gerir Cristiano Ronaldo gegn Íslandi í dag? Vísir/Hulda Margrét

Það er svo sannarlega nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. 

Við erum í Portúgal þar sem íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu spilar sinn síðasta leik í undankeppni EM, við sýnum aðra leiki í undankeppninni og sýnum frá Formúlu 1 í Vegas. Þá eru NBA, NFL og NHL á sínum stað.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.10 hefst upphitun fyrir leik Portúgals og Íslands. Leikurinn sjálfur hefst svo 19.45.

Klukkan 21.45 verður leikurinn gerður upp.

Stöð 2 Sport 2

Leikur Real Madríd og Unicaja í ACB-deildinni í körfubolta á Spáni er á dgskrá klukkan 11.20.

Klukkan 17.55 er leikur Miami Dolphins og Las Vegas Raiders í NFL-deildinni á dagskrá.

Klukkan 21.20 er leikur Los Angeles Rams og Seattle Seahawks í NFL-deildinni á dagskrá.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 17.45 er NFL Red Zone á dagskrá. Þar verður sýnt frá því helsta sem gerist í öllum NFL-leikjum dagsins.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 18.00 er CME Group Tour Championship-mótið í golfi á dagskrá. Það er hluti af LPGA-mótaröðinni.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 19.05 er leikur Keflavíkur og Vals í Subway-deild kvenna í körfubolta á dagskrá.

Stöð 2 ESport

Klukkan 20.00 er komið að leik Brooklyn Nets og Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta. Leikurinn er á Stöð 2 ESport að þessu sinni þar sem aðrar rásir eru uppteknar.

Vodafone Sport

Við hefjum leik eldsnemma þennan morguninn en Formúlu 1 keppni dagsins hefst klukkan 05.30.

Klukkan 10.00 er komið að NHL On The Fly.

Klukkan 13.50 er leikur Ungverjalands og Svartfjallalands í undankeppni EM 2024 í fótbolta á dagskrá.

Klukkan 16.50 er komið að leik Svíþjóðar og Eistlands.

Klukkan 19.35 er leikur Skotlands og Noregs á dagskrá.

Klukkan 00.05 er leikur Chicago Blackhawks og Buffalo Sabres í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×