Fótbolti

Tíðinda að vænta af Aroni sem er klár í eins mikinn djöful­gang og Åge vill

Aron Guðmundsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta Getty/Robbie Jay Barratt

Aron Einar Gunnars­son, fyrir­liði ís­lenska lands­liðsins í fót­bolta, segir ljóst að allt þurfi að ganga upp til að liðið tryggi sér beint sæti á EM að næstu tveimur leikjum liðsins loknum. Ís­land mætir Slóvakíu á fimmtu­daginn kemur í Bratislava og Aron, sem hefur ekkert spilað upp á síð­kastið, hefur verið að æfa stíft og styttist í að það dragi til tíðinda og að hann færi sig um set innan Katar.

Aron Guðmundsson skrifar frá Bratislava

Ís­land mætir Slóvakíu og Portúgal á úti­velli á næstu dögum og þarf sigur úr báðum leikjum, sem og að treysta á önnur hag­stæð úr­slit til að EM sætið raun­gerist í gegnum undan­keppnina.

„Staðan er fín. Ég er bara æfa og eins og þið vitið hef ég ekki verið að spila upp á síð­kastið,“ segir Aron Einar en tæki­færi hans hjá katarska fé­lags­liðinu Al-Arabi hafa ekki verið til staðar upp á síð­kastið.

„Ég var kominn af stað í við­ræður við annað lið í Katar. Reglurnar þarna úti eru þannig að ef þú ert er­lendur leik­maður, sem hefur ekki verið að spila neitt á tíma­bilinu, þá máttu færa þig yfir í annað lið ef er­lendur leik­maður hjá þeim dettur út. Það var komið á byrjunar­reit þar en við á­kváðum að bíða með að klára þetta á meðan að ég er í lands­liðs­verk­efninu. Það vonandi gerist eitt­hvað eftir að ég kem aftur til Katar.“

Klippa: Aron Einar nýttir sér bjargráð Gylfa Þórs og Alfreðs

Åge Hareide, lands­liðs­þjálfari Ís­lands greindi frá því að hann byggist við því að Aron færi að spila aftur reglu­lega frá og með janúar en lands­liðs­fyrir­liðinn segir það geta átt sér stað fyrr.

„Það gæti gerst fyrir janúar en ég vissi ekki af þessari reglu að ef ég væri ekki búinn að vera spila neitt mætti ég skipta yfir í annað lið. Ég reiknaði alltaf með því að færa um set yfir í annað lið í janúar, myndi vinna þetta út frá því en núna gæti verið að ég færi í annað lið um leið og ég verð kominn aftur út. Það verður bara að koma í ljós.“

Nýtti sér bjargráð sem hefur reynst Gylfa og Alfreð vel 

Aron hefur verið að ganga í gegnum nokkuð krefjandi meiðsla­tíma­bil en er byrjaður að æfa á fullu. Í gegnum sam­bönd við Gylfa Þór og Al­freð Finn­boga­son hefur hann verið í með­höndlun hjá sjúkra­þjálfara í Kaup­manna­höfn.

Gylfi Þór í leik með íslenska landsliðinu á dögunum.

„Þetta er maður sem hefur reynst þeim mjög vel og ég á­kvað að prófa þetta fyrir helgi. Ég náði þremur dögum með honum og það gekk bara mjög vel. Maður er að leita leiða sem henta manni hvað best til að halda sér í standi. Það er nóg eftir samt á tankinum. Ég get alveg sagt þér það.“

Viljinn alltaf til staðar en hversu mikið geturðu beitt þér í þessum tveimur leikjum fram­undan?

„Ég veit það ekki. Ég er náttúru­lega ekkert í frá­bæru leik­formi. Það er náttúru­lega bara staðan þegar að þú ert ekki að spila fót­bolta­leiki en hef verið að æfa á fullu. Svo er það bara undir þjálfaranum komið hvað hann vill nota mig mikið í þessum leikjum. Það verður bara að koma í ljós.“

Geta unnið úr báðum möguleikum

Mögu­leikinn á að tryggja sér beint sæti á EM í gegnum þennan riðil er enn til staðar þó svo að hann sé lítill. Heima hefur mikið verið talað um mögu­leikann á EM sæti í gegnum mögu­legt um­spil í Þjóða­deildinni. 

Hvernig horfir þetta verk­efni fram­undan við ykkur. Hvað er verið að leggja á­herslu á?

„Þú ert með tvo mögu­leika þarna. Þetta er ekki búið. Við höfum þennan mögu­leika á að komast á EM með því að enda í 2.sæti riðilsins en það þarf allt að ganga upp. Ef það gengur ekki þá erum við með mögu­leika í mars í gegnum um­spilið.

Aron Einar á æfingu með íslenska landsliðinu Vísir/Vilhelm Gunnarsson

Það er hægt að vinna út frá báðum þessum mögu­leikum. Þú getur verið að undir­búa liðið eins og þú vilt spila. Þjálfarinn er með það allt á hreinu. Undir­búningurinn okkar hingað til hefur verið góður. Við áttum góðan leik á móti Slóvakíu heima en máttum þola svekkjandi tap. Við vorum ó­heppnir að fá ekki neitt úr þeim leik. 

Mér fannst við spila virki­lega vel það en á endanum snýst þetta um að vera stöðugur, klára þau færi sem við fáum og loka búrinu. Þetta snýst um það í fót­boltanum. Við gerðum það ekki í þeim leik en allt annað var virki­lega flott og já­kvætt.

Við þurfum því að spila svipaðan leik og heima, bæta þá hluti sem gengu ekki upp í þeim leik. Ef við gerum það þá vinnum við þennan leik. Þá er hægt að spá að­eins meira í spilin. Það er bara sama gamla góða klisjan sem gildir í þessu. Við byrjum á þessum leik, náum í þrjú stig þar og vinnum okkur út frá því.“

Þetta er stór leikur fyrir Slóvakana sem geta tryggt sér EM-sæti með jafn­tefli eða sigri. Væri ekki gott að fara til Bratislava og skemma partýið?

„Al­gjör­lega og um leið setja smá pressu á þá fyrir þeirra leik gegn Bosníu & Herzegovinu í loka­um­ferðinni. Það er náttúru­lega planið en eins og ég sagði áðan þá þarf allt að ganga upp. Í lands­liðs­fót­boltanum er munur á heima- og úti­leikjunum. Litlu hlutirnir skipta enn meira máli og við þurfum að eiga topp­leik til þess að skemma þetta partý.“

Þurfa að bæta margt til að vera samkeppnishæfir á EM

Ef við förum að­eins í spila­mennsku liðsins undir stjórn Hareide. Finnst þér þetta á leiðinni í rétta átt?

„Fyrir mér erum við að læra meira inn á hann og sömu­leiðis hann inn á okkur. Það tekur alltaf tíma fyrir nýjan þjálfara að koma sér inn í hlutina og sömu­leiðis fyrir okkur að venjast hans leik­stíl. Mér finnst vera góður upp­gangur í þessu. En eins og gengur og gerist með ungt lið eins og okkar sem hefur verið að ganga í gegnum breytingar þá kemur smá ó­stöðug­leiki á hlutina.

Age Hareide tók við þjálfun íslenska landsliðsins 

Við þurfum að finna stöðug­leikann og þar er það undir okkur reynslu­meiri leik­mönnunum komið að leið­beina þeim. Við erum á leið í rétta átt. Það er góðs viti en hellings vinna fram­undan eins og við leik­menn, þjálfara­t­eymið og öll í kringum lands­liðið vita. Við þurfum að bæta margt til þess að koma okkur á þann stall að vera sam­keppnis­hæfir á EM. Við vitum það alveg en það er enn tími til stefnu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×