Fótbolti

Nuno rekinn annað sinn í röð

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Nuno var rekinn í annað sinn í röð
Nuno var rekinn í annað sinn í röð

Al Ittihad hefur ákveðið að segja upp þjálfara liðsins, Nuno Espirito Santos, hann hafði stýrt félaginu frá því í fyrra og vann ofurbikarinn síðastliðinn janúar en gamanið kárnaði mjög þegar Karim Benzema gekk til liðs við félagið í sumar. 

Benzema kom til liðsins í sumar ásamt fleiri stórstjörnum á borð við N'golo Kante, Jota og Luiz Felipe. Nuno og Benzema stungu hornum saman frá upphafi, þjálfarinn sagði Benzema ekki henta leikstílnum sem hann vildi spila og neitaði að afhenda honum fyrirliðabandið. 

Nuno hefur áður þjálfað Rio Ave, Valencia og Porto áður en hann tók við Wolves árið 2017. Þar dvaldi hann við góðan árangur í fjögur ár, fór með liðinu úr næstefstu deild upp í ensku úrvalsdeildina. 

Fyrstu tvö tímabilin í úrvalsdeildinni endaði Wolves í sjöunda sæti, sem er besti árangur í sögu félagsins. Nuno yfirgaf félagið og fór til Tottenham sumarið 2021, en þar tapaði hann fimm af fyrstu sjö leikjunum við stjórn og missti starfið í nóvember, aðeins fjórum mánuðum eftir komuna til Tottenham. 

Al Ittihad er í 6. sæti sádí-arabísku úrvalsdeildarinnar með 21 stig úr 12 leikjum. 

Julen Lopetegui, eftirmaður eftirmanns Nuno hjá Wolves hefur verið orðaður við starfið, en hann yfirgaf Wolves rétt áður en tímabilið hófst vegna fjárhagsörðgleika félagsins, eitthvað sem ætti ekki að valda vandræðum hjá Al Ittihad. Jose Mourinho hefur sömuleiðis verið nefndur á nafn og hann hefur opinberlega lýst yfir áhuga á því að þjálfa í Sádí-Arabíu en talið er líklegt að hann vilji klára tímabilið með Roma. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×