Íslenski boltinn

Bara fjórir leik­menn eftir úr meistara­liði KR frá 2019

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Óskar Örn Hauksson lyftir Íslandsbikarnum haustið 2019.
Óskar Örn Hauksson lyftir Íslandsbikarnum haustið 2019. Vísir/Daníel Þór

Reynsluboltarnir Kennie Chopart og Kristinn Jónsson hafa yfirgefið karlalið KR í fótbolta á síðustu dögum og það eru því mjög fáir eftir úr því liði sem færði KR síðasta Íslandsmeistaratitil sinn fyrir fjórum árum síðan.

KR varð Íslandsmeistari með yfirburðum sumarið 2019 en liðið endaði mótið með fjórtán stigum meira en næsta lið sem var Breiðablik.

Á síðustu árum hefur hver leikmaður þessa liðs á fætur öðrum yfirgefið Vesturbæjarliðið. Þjálfarinn Rúnar Kristinsson hætti síðan þjálfun liðsins eftir að Bestu deildinni lauk í haust og tók við liði Fram.

Margir hafa hætt í fótbolta

Margir úr meistaraliði KR frá 2019 hafa líka sagt skilið við fótboltann. Skúli Jón Friðgeirsson setti skóna upp á hillu strax eftir Íslandsmeistaratímabilið, Gunnar Þór Gunnarsson hætti eftir 2020 tímabilið, Pálmi Rafn Pálmason og Arnþór Ingi Kristinsson sögðu þetta gott eftir 2021 tímabilið og Beitir Ólafsson markvörður hætti í fótbolta eftir 2022 tímabilið.

Pablo Punyed hefur haldið áfram að vinna titla eftir að hann yfirgaf KR.Vísir/Daníel Þór

Pablo Punyed fór yfir til Víkinga fyrir 2021 tímabilið og hefur síðan unnið fimm stóra titla á sex árum með Víkingum.

Óskar Örn Hauksson gekk til liðs við Stjörnuna eftir 2021 leiktíðina að hafa hafa spilað með KR í fimmtán ár og bætt bæði leikja- og markametið. Óskar Örn var markahæstur í 2019 liðinu með sjö deildarmörk en Daninn Tobias Thomsen skoraði einnig sjö mörk. Thomsen fór heim til Danmerkur í ágúst 2020.

Bæði Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Finnur Orri Margeirsson fóru heim í Breiðablik, Finnur eftir 2020 tímabilið en Arnór fyrir tímabilið í ár.

Björgvin Stefánsson, sem skoraði fjögur mörk fyrir KR þetta sumar, en hann hætti hjá félaginu vegna veikinda eftir að hafa greinst með gigt í byrjun mars 2020. Alex Freyr Hilmarsson fór til ÍBV sumarið 2022 og Ástbjörn Þórðarson fór fyrst á láni til Gróttu og seinna til Keflavíkur. Aron Bjarki Jósepsson fór upp á Skaga fyrir 2022 tímabilið.

Af þeim sem spiluðu mest sumarið 2019 eru aðeins fjórir leikmenn eftir í KR en það eru Atli Sigurjónsson, Finnur Tómas Tómasson, Ægir Jarl Jónasson og Kristján Flóki Finnbogason.

Fjórir með nýlega samninga

Finnur Tómas fór út í atvinnumennsku en hefur síðan snúið aftur heim. Kristján Flóki spilaði reyndar mun minna en hinir því hann kom til KR í lok júlí á meistaraárinu. KR var komið með tíu stiga forskot þegar Kristján Flóki spilaði sinn fyrsta leik 6. ágúst.

Finnur Tómas Tómasson gerði nýjan fjögurra ára samning við KR í janúar 2022, Atli framlengdi samning sinn um þrjú ár í upphafi 2022 tímabilsins og Kristján Flóki samdi einnig til þriggja ára í janúar í fyrra. Ægir Jarl er síðan með samning út 2024 tímabili. Þessir fjórir eru því ekki á förum úr Vesturbænum.

Það er því miklar líkur á því að þessir fjórir haldi áfram að spila með KR-liðinu undir nýjum þjálfara. Minningin um Íslandsmeistaratitilinn lifir því enn innan liðsins.

  • Þeir spiluðu flestar mínútur í KR-liðinu 2019:
  • 1. Beitir Ólafsson 1980 mínútur - HÆTTUR
  • 2. Óskar Örn Hauksson 1932 mínútur - FARINN
  • 3. Arnór Sveinn Adalsteinsson 1890 mínútur - FARINN
  • 4. Pálmi Rafn Pálmason 1856 mínútur - HÆTTUR
  • 5. Tobias Thomsen 1793 mínútur - FARINN
  • 6. Kristinn Jónsson 1611 mínútur - FARINN
  • 7. Kennie Chopart 1520 mínútur - FARINN
  • 8. Finnur Tómas Pálmason 1503 mínútur
  • 9. Pablo Punyed 1419 mínútur - FARINN
  • 10. Atli Sigurjónsson 1070 mínútur
  • 11. Arnþór Ingi Kristinsson 962 mínútur - HÆTTUR
  • 12. Skúli Jón Friðgeirsson 778 mínútur - HÆTTUR
  • 13. Finnur Orri Margeirsson 773 mínútur - FARINN
  • 14. Kristján Flóki Finnbogason 715 mínútur
  • 15. Gunnar Þór Gunnarsson 532 mínútur - HÆTTUR
  • 16. Björgvin Stefánsson 453 mínútur - HÆTTUR
  • 17. Alex Freyr Hilmarsson 404 mínútur - FARINN
  • 18. Ægir Jarl Jónasson 384 mínútur

Tengdar fréttir

Kristinn Jónsson segir bless við KR

Kristinn Jónsson mun ekki spila áfram með KR í Bestu deild karla í fótbolta og félagið hefur því misst tvo reynslubolta á stuttum tíma.

„Auð­vitað er pressa, eftir­vænting og spenna yfir því hver tekur við þessu starfi“

Gregg Ryder var í fyrradag ráðinn þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu. Hann skrifaði undir þriggja ára samning og er Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar, ánægður með þá lendingu sem málið fékk. Hann segir KR aldrei hafa verið undir pressu að ráða inn nýjan þjálfara eftir að ákveðið var að framlengja ekki við Rúnar Kristnsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×