Innlent

Kærir kynfræðslubók fyrir hönd foreldra: „Á þetta erindi við börn, ef fullorðið fólk sættir sig ekki við þetta?“

Jón Þór Stefánsson skrifar
Arnar Þór hefur kært bókina Kyn, kynlíf og allt hitt, en hann og Árelía Eydís Guðmundsdóttir ræddu um málið í Sprengisandi í dag.
Arnar Þór hefur kært bókina Kyn, kynlíf og allt hitt, en hann og Árelía Eydís Guðmundsdóttir ræddu um málið í Sprengisandi í dag. Vísir

Lögmaður hefur fyrir hönd um það bil tuttugu foreldra lagt inn kæru á hendur Menntamálastofnun vegna útgáfu bókarinnar Kyn, kynlíf og allt hitt. Bókin er ætluð grunnskólabörnum, en Arnar segir umbjóðendur sínir telji hana særi blygðunarkennd, og brjóta í bága við menningarlegar stoðir íslensks samfélags.

Þetta kom fram í viðtali við Arnar Þór Jónsson, lögmann, í umræðuþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þar bendir hann á að í hegningarlögum sé bann við því að börn séu sýnd á kynferðislegan eða klámfengin hátt. Mat umbjóðenda hans sé að það sé gert í bókinni.

„Að grafískar lýsingar á kynlífi, hvatning til kynferðislegra athafna, hvatning til að jafnvel börn séu að taka myndir af sínum viðkvæmustu svæðum, hvatning til þess að börn séu að prófa alls konar kossa og svona myndefni sem er verið að hengja upp í skólum landsins. Myndefni sem yrði jafnvel ekki hengt upp á vinnustöðum fullorðins fólks. Þá spyr fólk: Á þetta erindi við börn, ef fullorðið fólk sættir sig ekki við þetta?“ spyr Arnar.

Hann tekur fram að hann væri ekki að varpa fram sínum eigin skoðunum heldur væri hann talsmaður foreldra sem hefðu þessar áhyggjur.

Óleikur að fræða ekki börnin

Árelía Eydís Guðmundsdóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, ræddi einnig um málið í Sprengisandi og segist taka eftir áhyggjum Arnars. Þó bendir hún á könnun sem hafi nýlega komið á borð hennar þar sem fram kemur að rúmur helmingur stúlkna í tíunda bekk hafi fengið beiðni um kynferðislega mynd af sér.

„Ætlum að gera okkur þann óleik að mennta ekki börnin okkar og fræða þau um til dæmis áhrif kláms?“ segir Árelía sem bendir á að klámáhorf ungra drengja verði til þess að þeir geti síður tengst konum. „Þannig þið getið ímyndað ykkur hversu áhrifin eru mikil.“

Árelía útskýrir að sex ára börnum sé ekki dembt beint ofan í sömu kynfræðslu og eldri nemendum. Miðað sé við þroska barnanna við kennsluna.

„Það er svo auðvelt að taka svona bók og taka eitthvað eitt sem sjokkerar þig mest, og segja að þetta sé ekki hægt. En það er ekki þannig,“ segir hún og útskýrir að kennarar setji kennsluna upp eins og þeir telji best og meti þá aldur og þroska barnanna.

Þó minnist Árelía á að vegna mikillar umræðu og tortryggni sumra í garð kynfræðslu í grunnskólum hafi kennarar farið að veigra sér við því að fjalla um umrædd málefni í kennslustofum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×