Íslenski boltinn

Pedersen framlengir samning sinn við Val

Aron Guðmundsson skrifar
Patrick Pedersen mun stoppa lengur við á Hlíðarenda
Patrick Pedersen mun stoppa lengur við á Hlíðarenda Vísir/Diego

Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur og danski sóknarmaðurinn Pat­rick Peder­sen hafa fram­lengt samninginn sín á milli um tvö ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild Vals.

Pat­rick kom fyrst að láni til Vals frá danska fé­laginu Vend­sys­sel FF árið 2013 Vals. Þar gerði hann góða hluti og voru félagsskipti hans fljótlega á þeim tíma gerð endanleg.

Pedersen var seinna keyptur frá val til Viking í Noregi en hann átti þó eftir að snúa aftur á Hlíðarenda. Valur fékk hann til­baka og lék hann með fé­laginu allt þar til hann var seldur til Sheriff í Molda­víu.

Daninn stoppaði hins vegar stutt þar og kom hann enn einu sinni á Hlíðar­enda árið 2019 og hefur verið þar síðan þá.

Peder­sen er mikill markahrókur og er í sjötta sæti yfir markahæstu leikmenn allra tíma í efstu deild.

Hann á 224 leiki að baki með Val og hefur í þeim leikjum skorað 139 mörk. Þar af eru níu mörk sem hann hefur skorað í Bestu deildinni á yfirstandandi tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×