Fótbolti

Selma Sól kom Rosenborg á bragðið í bikarsigri

Siggeir Ævarsson skrifar
Selma Sól var á skotskónum í dag
Selma Sól var á skotskónum í dag Rosenborg

Landsliðskonan Selma Sól Magnúsdóttir var í byrjunarliði Rosenborg þegar liðið tók á móti Lilleström í undanúrslitum norska bikarsins. 

Hún kom sínum konum á bragðið með fyrsta marki leiksins á 56. mínútu en öll þrjú mörk leiksins komu á sjö mínútna kafla.

Gestirnir jöfnuðu leikinn skömmu seinna en Cesilie Andreassen tryggði Rosenborg sigurinn á 63. mínútu. 

Rosenborg er því komið í úrslitaleik norska bikarsins þar sem liðið mætir annað hvort Ingibjörgu Sigurðardóttur og félögum í Vålerenga eða Lyn en seinni undanúrslitaleikurinn hefst nú innan stundar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×