Fótbolti

Magnaður Andri Lucas lætur til sín taka hjá Lyng­by

Aron Guðmundsson skrifar
Andri Lucas fagnar marki sínu fyrir Lyngby
Andri Lucas fagnar marki sínu fyrir Lyngby Mynd: Lyngby

Það er ó­hætt að segja að ís­lenski sóknar­maðurinn Andri Lucas Guð­john­sen hafi farið vel af stað með danska úr­vals­deildar­fé­laginu Lyng­by. Andri raðar inn mörkum þessi dægrin fyrir fé­lagið.

Andri Lucas, sem gekk til liðs við Lyngby á láni frá sænska úrvalsdeildarfélaginu IFK Norrköping í sumar, hefur verið potturinn og pannan í sóknarleik Lyngby á yfirstandandi tímabili. 

Í gær heimsótti Lyngby, HK Koge í danska bikarnum og þar hélt Andri Lucas, sem hefur verið iðinn við kolann á tímabilinu, uppteknum hætti og skoraði tvö marka liðsins í 4-2 sigri.  

Tækifærin höfðu verið af skornum skammti fyrir Andra Lucas hjá IFK Norrköping en Íslendingurinn knái hefur verið fljótur að minna á sig í Danmörku. Þar var honum ætlað að fylla upp í stór sport Alfreðs Finnbogasonar fyrrum sóknarmanns Lyngby sem hélt til Belgíu fyrr á árinu. 

Ekki er annað hægt að segja en að Andri Lucas sé að standa sig með mikilli prýði það sem af er tímabili.  Tölfræði hans í leikjum Lyngby til þessa rennir stoðum undir það. Sex mörk í síðustu fimm leikjum með Lyngby í deild og bikar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×