Fótbolti

Jónatan Ingi lagði upp mark í jafntefli

Siggeir Ævarsson skrifar
Jónatan Ingi Jónsson lagði upp mark Sogndal í dag
Jónatan Ingi Jónsson lagði upp mark Sogndal í dag Sogndal

Íslendingahersveit Sogndal tók á móti Åsane í norsku fyrstu deildinni nú áðan. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og það var Jónatan Ingi Jónsson sem lagði upp mark heimamanna.

Allir þrír Íslendingarnir í herbúðum Sogndal voru í byrjunarliðinu í dag. Áðurnefndur Jónatan Ingi, Valdimar Þór Ingimundarson í fremstu víglínu og Óskar Borgþórsson á miðjunni.

Martin Sjølstad skoraði mark Sogndal á 58. mínútu en Sindre Austevoll jafnaði leikinn á 76. mínútu og þar við sat.

Sogndal eru í harði baráttu um að komast upp í úrvalsdeild og sitja í þéttum pakka um umspil, en 3. - 6. sæti gefur sæti í umspili. Sogndal er með 35 stig í 5. sæti en aðeins munar átta stigum á 4. og 10. sæti og deildin því enn galopin þegar 24. umferð er að klárast af 30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×