Fótbolti

Besta deildin vonbrigði: „Ekki margar sem hafa ýtt við mér“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þorsteinn kallar eftir betri frammistöðu leikmanna í Bestu deildinni, að þeir geri pressu á landsliðssæti.
Þorsteinn kallar eftir betri frammistöðu leikmanna í Bestu deildinni, að þeir geri pressu á landsliðssæti. Vísir/Vilhelm

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, segir að reynsluminni leikmenn þurfi að stíga upp í ljósi mikilla fráfalla landsliðskvenna í komandi landsliðsverkefni. Þó kveðst hann vonsvikinn með að fáir leikmenn í Bestu deild kvenna hafi gert raunverulegt tilkall til landsliðssætis.

Fram undan hjá Íslandi eru fyrstu leikir liðsins í nýrri Þjóðadeild þar sem liðið mætir Wales hér heima áður en það sækir Þýskaland heim ytra. 

„Mér líst vel á þetta. Þetta verða krefjandi leikir og erfiðir en við ætlum að fá góða frammistöðu og ef það tekst fáum við góð úrslit.“ segir Þorsteinn um verkefnið.

Klippa: Besta deildin ekki nægilega sterk

Breyttur hópur

Umtalsverðar breytingar eru á leikmannahópi liðsins vegna bæði meiðsla og barneigna.

„Þær eru ýmist meiddar, óléttar eða hættar. Þetta eru svona þær ástæður sem eru á bakvið þetta. Það er ekkert við því að segja, leikmenn geta meiðst og konur verða ófrískar og þær eru á þeim aldri,“

„Þetta er bara þróun á liðinu og er hluti þess að þjálfa lið. Það er spennandi að sjá hvernig aðrir leikmenn taka skrefið inn í hópinn og liðið,“ segir Þorsteinn.

Þorsteinn segir hóp Íslands þó ekki veikari fyrir vikið og hefur trú á þeim leikmönnum sem í stað reynsluboltanna koma. Þær þurfi að sýna sig og sanna.

„Þetta breyting hefur átt sér stað yfir dálítinn tíma og í hverjum glugga hafa einhverjar meiðst, hætt eða orðið ófrískar og aðrar verið að taka við keflinu. Mér finnst við hafa haldið vel í horfinu og við höfum náð í fín úrslit. Þannig að það er engin ástæða til að vera ekki bjartsýnn,“

„Mér finnst við ekki hafa sýnt það [að liðið hafi veikst] þó að leikurinn hérna gegn Finnum í sumar hafi verið lélegur þá stigum við upp gegn Austurríki og unnum þær úti. Við höfum náð í fín úrslit á þessu ári og unnið tvær þjóðir sem tóku þátt á HM,“ segir Þorsteinn.

Sandra Sigurðardóttir er mætt aftur í landsliðið. Hún hefur mikilvæga reynslu, segir þjálfarinn.Vísir/Sigurjón Ólason

Sandra Sigurðardóttir er þá komin aftur í landsliðið eftir að hún tók skóna af hillunni í sumar.

„Ég vildi fá reynslu inn. Við værum með algjörlega óreynt þriggja manna markmannsteymi hefði ég ekki valið Söndru. Ég vildi hafa einn markmann þarna með keppnisleiki á bakinu til að miðla reynslu og styðja hina markmennina líka. Mér fannst það gríðarlega mikilvægt fyrir þennan glugga. Svo sjáum við í framhaldinu hverju það skilar,“ segir Þorsteinn.

Bryndís ekki sannað sig á nógu háu stigi og Besta deildin vonbrigði

Bryndís Arna Níelsdóttir, framherji Vals, er langmarkahæst í Bestu deildinni með 14 mörk en næstu konur eru með sjö. Þrátt fyrir það treystir Þorsteinn henni ekki í verkefnið.

„Bryndís er náttúrulega búin að vera að skora fullt en ég taldi eftir að hafa skoðað leikina í vor við Danmörku að hún ætti ennþá eitthvað í land og hún er núna að fara að spila við Marokkó [með U23 landsliðinu] og vonandi stendur hún sig þar. Þetta snýst um að sýna sig á því stigi sem þú telur að geti hentað í landsleikjum. Það er hennar að sýna að hún eigi heima í landsliðinu.“

Bryndís Arna Níelsdóttir hefur skorað 14 mörk í deildinni en næstmarkahæstu konur hafa skorað sjö.Vísir/Vilhelm

Stigið sem Bryndís Arna er að skora á sem stendur, í Bestu deildinni, segir Þorsteinn sem sagt ekki nógu hátt. Hann kveðst vonsvikinn með að fáir leikmenn hafi gert tilkall til landsliðssætis í Bestu deild kvenna í sumar.

„Ég vonast alltaf til að við fáum fleiri leikmenn sem ýta við manni að maður þurfi að velja þær. Ef maður horfir raunverulega á Íslandsmótið núna þá er hreint út sagt ekkert rosalega margir leikmenn sem hafa ýtt við mér. Það eru ákveðin vonbrigði með mótið,“ segir Þorsteinn.

Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×