Veður

Hiti yfir tuttugu stig í Reykjavík í fyrsta sinn í sumar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Það var blessuð blíðan í Reykjavík í dag.
Það var blessuð blíðan í Reykjavík í dag. Vísir/Vilhelm

Hitinn fór yfir tuttugu gráður í Reykjavík í dag og er það í fyrsta sinn sem það gerist í sumar. Líkur á tuttugu stiga hita í Reykjavík eru almennt litlar en minnka ört eftir miðjan ágúst. Í Garðabænum náði hitinn 22,3 gráðum.

Trausti Jónsson, veðurfræðingur, greindi frá hitanum á Facebook-síðu sinni Hungurdiskum

Í færslunni segir að þetta sé ekki aðeins í fyrsta skiptið í sumar sem hitinn fer yfir tuttugu stig heldur í fyrsta skiptið í tvö ár. Þá rifjar hann upp að einu sinni liðu sextán ár án þess að hiti næði tuttugu stigum í Reykjavík.

Trausti Jónsson, veðurfræðingur, hefur sérstaklega áhyggjur af samfellu úrkomumælinga í Reykjavík við flutning veðurmæla.Vísir

Trausti segi að líkur á svo miklum hita séu ekki miklar og þær minnki eftir því sem líður á ágúst. Hann minnist þess þó þegar hitinn náði tuttugu stigum þann 25. ágúst árið 2015. 

Aðeins er vitað um eitt ár með tuttugu stiga hita í Reykjavík sem mældist síðar á sumrinu. Það var árið 1939 þegar hiti fór í tuttugu stig bæði 31. ágúst og 3. september. 

Trausti nefnir þó að eldri mælingar séu ekki alveg samanburðarhæfar við nútímann vegna þess að mælarnir voru bæði nær jörðu og ekki í skýli.

Kólnar á morgun en svipað veður næstu daga eftir það

Elín Björk Jónasdóttir, vakthafandi veðurfræðingur, staðfesti það við Vísi að hitinn hefði farið hefði yfir tuttugu stig í Reykjavík og nágrenni. 

Hún sagði að í Garðabænum hefði hitinn náð 22,3 gráðum og rúmlega 21 gráðu í Víðidal, suður af Elliðaárdal. Utan höfuðborgarsvæðisins hefði hitinn náð 23 gráðum á Hellu.

Ágúst hefur verið nokkuð hlýr í ár.Vísir/Vilhelm

Veðrið verður ekki alveg jafn gott á morgun og það var í dag. „Það kólnar á morgun með norðanátt og fer kannski að rigna. Það rignir á Norðurlandi á morgun og vestantil annað kvöld,“ sagði Elín um morgundaginn.

„Svo er nú frekar svipað veður áfram, þriðjudag til fimmtudags, norðanátt og skýjað á norðan- og austanverðu landinu en bjartviðri hérna suðra. Það verður hlýtt aftur þá. Þannig það er alveg til þess að gera blíðu fram undan,“ sagði hún.

„Svo er útlit fyrir að það verði hressileg rigning næstu helgi en mjög hlýtt. En það er enn svolítil óvissa með það,“ sagði Elín að lokum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×