Fótbolti

Glæsi­mark James kom ensku Evrópu­meisturunum í kjör­stöðu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lauren James skorar eina mark leiks Englands og Danmerkur.
Lauren James skorar eina mark leiks Englands og Danmerkur. getty/Naomi Baker

Evrópumeistarar Englands eru með fullt hús á toppi D-riðils heimsmeistaramótsins í fótbolta kvenna eftir sigur á Danmörku í dag, 1-0.

Lauren James, leikmaður Chelsea, fékk tækifæri í byrjunarliði Englands í dag og hún þakkaði Sarinu Wiegman traustið.

Á 6. mínútu skrúfaði James boltann í netið fyrir utan vítateig og kom Englendingum yfir.

Þetta reyndist eina mark leiksins og ensku Evrópumeistararnir hafa því unnið báða leiki sína á HM 1-0. England er á toppi D-riðils og getur komist áfram í sextán liða úrslit ef Kína mistekst að vinna Haití á eftir.

England varð þó fyrir áfalli þegar Keira Walsh var borin af velli seint í fyrri hálfleik. Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsli hennar eru.

Danmörk er í 2. sæti D-riðils með þrjú stig og mætir Haití í lokaumferð riðlakeppninnar á miðvikudaginn. Á sama tíma eigast England og Kína við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×