Íslenski boltinn

Hafa skorað sex sinnum hjá Fylki í tveimur leikjum í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valsmenn hafa raðað inn mörkum í síðustu leikjum sínum á móti Fylki.
Valsmenn hafa raðað inn mörkum í síðustu leikjum sínum á móti Fylki. Vísir/Diego

Það eru meira en þrjú þúsund dagar síðan Fylkismenn unnu síðast Valsmenn í deild þeirra bestu en liðin mætast á Hlíðarenda í kvöld.

Valsmenn taka á móti Fylki í 14. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld en þetta verður fyrsti deildarleikur Valsmanna í átján daga eða í næstum því þrjár vikur.

Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Valsliðið spilaði síðast 24. júní í Vestmannaeyjum þegar liðið vann 3-0 sigur á ÍBV en síðasti heimaleikur Vals var 1-1 jafnteflisleikur á móti FH 2. júní eða fyrir meira en fjörutíu dögum síðan.

Valsmenn ættu að mæta sigurvissir til leiks í kvöld miðað við sögu síðustu ára og glímur þeirra við Árbæinga.

Valsliðið hefur nefnilega farið á kostum í síðustu tveimur deildarleikjum sínum á móti Fylki en liðið hefur skorað sex mörk í þeim báðum þar af þeim síðasta sem var í byrjun maí síðastliðnum.

Valsmenn skoruðu einnig sex mörk í sigri á Fylki í lok september 2021 en það haust féllu Fylkismenn úr deildinni. Þeir komu síðan aftur upp í deild þeirra bestu fyrir þetta tímabil.

Fylkir hefur ekki náð að vinna Val í átta ár og tíu mánuði eða síðan að þeir unnu 2-0 sigur á Val á Fylkisvellinum 24. ágúst 2014.

Síðan þá hafa liðin mæst tólf sinnum í efstu deild, Valsmenn hafa unnið átta sinnum og fjórum sinnum hefur leikurinn endaði með jafntefli. Markatalan er 31-8, Valsmönnum í vil. Ásgeir Eyþórsson og Oddur Ingi Guðmundsson skoruðu mörk Fylkis í leiknum.

  • Síðustu tveir leikir Vals á móti Fylki
  • -

  • 3. maí 2023
  • Fylkir - Valur 1-6
  • Mörk Vals: Adam Ægir Pálsson, Andri Rúnar Bjarnason, sjálfsmark, Aron Jóhannsson, Sigurður Egill Lárusson og Hlynur Freyr Karlsson.
  • -
  • 25. september 2021
  • Fylkir - Valur 0-6
  • Mörk Vals: Patrick Pedersen (3), Guðmundur Andri Tryggvason (2) og Arnór Smárason .



Fleiri fréttir

Sjá meira


×