Fótbolti

Ronaldo kominn með nýjan þjálfara

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luís Castro er nýr þjálfari Al-Nassr.
Luís Castro er nýr þjálfari Al-Nassr. getty/Wagner Meier

Cristiano Ronaldo og félagar hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu eru komnir með nýjan þjálfara.

Sá heitir Luís Castro og er portúgalskur eins og Ronaldo. Hann hefur komið víða við á þjálfaraferlinum og þjálfað í heimalandinu, Úkraínu, Katar og Brasilíu þar sem hann var síðast hjá Botafogo.

Rudi Garcia var rekinn frá Al-Nassr áður en síðasta tímabili lauk. Al-Nassr endaði í 2. sæti sádiarabísku úrvalsdeildarinnar.

Al-Nassr ætlar sér stærri hluti á næsta tímabili og hefur samið við króatíska landsliðsmanninn Marcelo Brozovic sem var síðast hjá Inter.

Ronaldo gekk í raðir Al-Nassr um áramótin. Hann hefur skorað fjórtán mörk í sextán deildarleikjum fyrir liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×