Síð­búið mark frá vara­manninum Joselu tryggði Spáni sæti í úr­slitum

Siggeir Ævarsson skrifar
Varamaðurinn Joselu skoraði sigurmarkið á 88. mínútu.
Varamaðurinn Joselu skoraði sigurmarkið á 88. mínútu. Vísir/Getty

Spánverjar eru á leið í úrslitaleik Þjóðadeildar UEFA eftir 2-1 sigur á Ítalíu í kvöld. Varamaðurinn Joselu tryggði Spánverjum sigurinn með marki á 88. mínútu.

Leikurinn var jafn frá 11. mínútu, en Ciro Immobile jafnaði þá leikinn fyrir Ítalíu með marki úr vítaspyrnu. Leikurinn var ansi jafn og bæði lið áttu sín færi. En hin 33 ára varamaður Joselu, sem spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Spán í ár, tryggði Spáni sigurinn rétt fyrir leikslok, með þriðja landsliðsmarkinu sínu í jafnmörgum leikjum.

Úrslitaleikur Spánar og Króatíu fer fram sunnudaginn 18. júní og hefst kl. 18:45.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira