Hingað til hafa Eldklárar og eftirsóttar getið sér gott orð sem spunahópur en nú ætla þær að láta reyna á ljóðabókaútgáfu af því, eins og þær segja sjálfar, „svona gáfaðar og heitar konur geta allt!“
Útgáfuhófið verður haldið klukkan 17.00 á Slippbarnum þar sem aðdáendur og aðrir góðir gestir geta skálað, keypt bók og hlustað á upplestur á nokkrum ljúfum ástarljóðum. Einnig verður í rýminu innsetning innblásin af ljóðunum sem mun standa til 15. júlí.
Spunahópur færir út kvíarnar
Eldklárar og Eftirsóttar er sjálfstæður hópur listakvenna sem hefur komið fram sem spunahópur síðan árið 2021. Þær hafa sýnt með Improv Ísland, á Reykjavík Fringe og hafa haldið sjálfstæðar sýningar í Tjarnarbíói.

Hópinn skipa: Ebba Sigurðardóttir, Gríma Kristjánsdóttir, Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir, Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, Laufey Haraldsdóttir, Rebekka Magnúsdóttir og Sunna Björg Gunnarsdóttir.
Í þessari fjölbreyttu flóru má finna ljósmyndara, uppistandara, rithöfund, leikkonur, keramiklistakonu, lögfræðing, hagfræðing, mæður og fráskildar frúr.
Fyrir þau sem ekki sjá sér fært að mæta á útgáfuhófið vegna alvarlegra afsakana fá annað tækifæri til að sjá þessar frænku konur á sviðslistahátíðinni Reykjavík Fringe þar sem þær munu sýna spuna á Kiki, 28. og 29. júní næstkomandi.