Real Madríd vann Getafe 1-0 í síðasta leik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það þýðir að Barcelona þarf að bíða aðeins lengur þangað til kampavínið verður opnað.
Eina mark leiksins skoraði Marco Asensio á 70. mínútu en Carlo Ancelotti, þjálfari Real, hvíldi marga af lykilmönnum sínum í kvöld.
Sigurinn þýðir að Real er með 71 stig að loknum 34 leikjum. Barcelona er með 82 stig á toppnum og getur tryggt sér spænska meistaratitilinn með sigri á Espanyol á morgun.