Sjáðu mörkin: Svein­­dís Jane og Wolfs­burg í úr­­slit Meistara­­deildar Evrópu eftir fram­­lengingu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir í leik kvöldsins.
Sveindís Jane Jónsdóttir í leik kvöldsins. Clive Rose/Getty Images

Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru komnar í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir dramatískan 3-2 sigur á Arsenal í leik sem þurfti að framlengja. Sigurmarkið kom ekki fyrr en á 118. mínútu leiksins.

Eftir 2-2 jafntefli í Þýskalandi var ljóst að spennustigið í leik kvöldsins var mjög hátt. Þá var uppselt á Emirates-leikvanginn í Lundúnum. Alls mættu 60 þúsund manns á leik kvöldsins og ljóst að gríðarlega mikið hefur breyst á aðeins tíu árum.

Strax í upphafi leiks virtist sem Wolfsburg væri að fara fá vítaspyrnu en eftir að boltinn fór hendina á leikmanni Arsenal innan vítateigs. Á endanum var ekkert dæmt.

Það nýtti heimaliðið sér en Stina Blackstenius kom Arsenal yfir eftir skelfilegan varnarleik gestanna þegar rúmar tíu mínútnur voru liðnar af leiknum. Arsenal breytti vörn í sókn á örskotstundu en það verður að setja spurningamerki við varnarleik Wolfsburg.

Lengi vel virtist sem þetta yrði eina mark fyrri hálfleiks en þegar þrjár mínútur voru til loka fyrri hálfleiks jafnaði Jill Roord með góðu skoti eftir að Alexandra Popp skallaði boltann út til hennar.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks tók Sveindís Jane á rás upp vinstir vænginn. Lék hún á hvern leikmann Arsenal á fætur öðrum áður en hún lét vaða á markið. Manuela Zinsberger var hins vegar vel staðsett í marki Arsenal og varði vel, staðan því 1-1 í hálfleik.

Strax í upphafi þess síðari hélt Blackstenius að hún hefði komið Skyttunum yfir þegar hún skoraði með góðu skoti eftir fyrirgjöf frá hægri. Eftir gríðarleg fagnaðarlæti heimaliðsins kom í ljós að markið var ekk gilt vegna rangstöðu.

Þegar tæp klukkustund var liðin komust gestirnir frá Þýskalandi yfir. Felicitas Rauch tók hornspyrnu á nær sem Alexandra Popp skallaði í netið af stuttu færi. Wolfsburg komið yfir í leiknum sem og einvíginu. 

Skytturnar létu það ekki á sig fá og þegar stundarfjórðungur lifði leiks jafnaði heimaliðið metin. Eftir að aukaspyrna heimaliðsins var skölluð frá gaf Carlotte Wubben-Moy boltann inn á teig, þar reis Jennifer Beattie hæst og skallaði boltann í netið. 

Staðan í leik kvöldsins hér 2-2 og 4-4 í einvíginu. Þar sem fleiri mörk voru ekki skoruð í venjulegum leiktíma þurfti að framlengja. Þar fékk Arsenal betri færin, Merle Frohms varði vel í marki gestanna sem og boltinn fór í þverslánna hjá gestunum. 

Það er ekki að því spurt og á 118. mínútu vann Jule Brand - sem hafði komið inn fyrir Sveindísi Jane á 101. mínútu - boltann og óð inn á teig Arsneal. Þar gaf hún fyrir markið á Pauline Bremer sem gat ekki gert annað en rennt boltanum í opið markið. Reyndist það sigurmark leiksins, ótrúlegur endir á ótrúlegum leik. 

Wolfsburg vann þar af leiðandi leik kvöldsins 3-2 og einvígið 5-4. Sveindís Jane og stöllur mæta því Barcelona í úrslitum Meistaradeildar Evrópu þann 3. júní næstkomandi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira