Tíska og hönnun

„Það er ekkert bannað þegar það kemur að tísku“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Alísa Helga Svansdóttir er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
Fyrirsætan Alísa Helga Svansdóttir er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Aðsend

Fyrirsætan Alísa Helga Svansdóttir hefur ferðast víða um heiminn í starfi sínu og má með sanni segja að tíska hafi mikil áhrif á hennar líf, þar sem hún lifir og hrærist í þeim heimi. Hún býr yfir fjölbreyttum stíl og fylgir engum boðum og bönnum þegar það kemur að klæðaburði. Alísa Helga er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Alísa Helga býr yfir einstökum persónulegum stíl.Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Það sem mér finnst skemmtilegast við tískuna er að þú getur tjáð þig í gegnum klæðnað án þess að þurfa að útskýra það með orðum. Hún getur sagt svo mikið um persónuleika þinn og hvernig karakterinn þinn er.

Alísa Helga segir eitt það skemmtilegasta við tískuna vera að geta tjáð sig án orða.Instagram @alisahelgasvans

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Ég á enga uppáhalds flík en mér finnst flottir skór, til dæmis Adidas superstars, eða þröngur toppur alltaf hjálpa outfittinu.

Alísa Helga segir að þröngur toppur geti alltaf hjálpað outfittinu.Instagram @alisahelgasvans

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Það fer algjörlega eftir því hvert ég er að fara eða hvað ég er að fara að gera. Það getur verið allt frá nokkrum mínútum í nokkra klukkutíma, ef um stóran viðburð er að ræða.

En venjulega reyni ég að ákveða outfittið mitt daginn fyrir svo að ég lendi ekki í vandræðum samdægurs.

Það getur tekið Alísu Helgu allt frá nokkrum mínútum yfir í nokkra klukkutíma að velja föt.Instagram @alisahelgasvans

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Alls konar, allt frá „tomboy“ yfir í að vera „stelpulegur“. Ég er aðallega með baggy-, loose-fitting stíl sem daglegan fatnað en ég get líka átt það til að vera í hátísku fatnaði við rétt tækifæri.

Stíllinn hennar Alísu Helgu er fjölbreyttur.Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Hann hefur þróast með aldrinum, frá því að ég vildi vera í svipuðum fatnaði og samaldrar mínir í það sem hentar mér í dag og ég fíla án þess að aðrir hafi áhrif á það.
Alísa hefur gengið tískupallana fyrir ýmis stór nöfn í bransanum en hér er hún á sýningu fyrir Emporio Armani.Instagram @alisahelgasvans

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Á samfélagsmiðlana Pinterest og TikTok.

Alísa sækir tískuinnblásturinn í samfélagsmiðla. Aðsend

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Baggy buxur eru alltaf möst en það er ekkert bannað þegar það kemur að tísku, klæddu þig í það sem þú vilt.

Baggy buxur eru í miklu uppáhaldi hjá Alísu Helgu.Aðsend

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Það var þegar ég klæddist outfitti frá YSL þegar ég var í myndatöku í Mílanó. Það var svo fáránleg töff og eitthvað sem ég myndi sjálf klæðast.

Saint Laurent dressið sem Alísa klæðist hér er henni mjög eftirminnilegt.Aðsend

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Ef þér finnst outfittið þitt vera basic settu þá á þig skartgripi. Finndu þinn eigin stíl. Það má allt!

Alísa Helga lifir ekki eftir boðum og bönnum í tískunni.Aðsend

Tengdar fréttir

„Enn að kynnast nýjum líkama og því hvernig mér finnst best að klæða mig“

Samkvæmisdansarinn, raunveruleikastjarnan og ofur skvísan Ástrós Traustadóttir hefur farið í gegnum ýmis tímabil í tískunni. Í dag er hún nýbökuð móðir og sækir meira í jarðtóna liti en áður ásamt því að vanda vel valið á þeim flíkum sem hún fjárfestir í. Ástrós er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Myndi ekki vilja láta finna mig dauða í ýmsum flíkum“

Búningahönnuðurinn og listamaðurinn Sylvía Dögg Halldórsdóttir, jafnan þekkt sem Sylvía Lovetank, hefur alla tíð verið samkvæm sjálfri sér í fatavali. Hún segir mikilvægast að hlusta á hjartað þegar það kemur að persónulegum stíl en tíska er órjúfanlegur hluti af lífi hennar og starfi. Sylvía Lovetank er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Ætlaði sko ekki að falla inn í hópinn“

Tónlistarmaðurinn, stærðfræði séní-inn og lífskúnstnerinn Kjalar söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar í Idolinu í vetur þar sem hann hafnaði öðru sæti. Kjalar hefur einnig vakið mikla athygli fyrir einstakan stíl sinn en hann elskar litríkar flíkur og er að eigin sögn duglegur að ögra sér í fatavali. Kjalar er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Labbaði á tískusýningu komin átta mánuði á leið

Stílistinn og tískuskvísan Karin Arnhildardóttir hefur brennandi áhuga á klæðaburði og reynir alltaf að kaupa flíkur sem endast lengi. Stíllinn hennar hefur breyst svolítið á síðustu árum þar sem hún sækir meira í þægindi, sem hún segir ekki alltaf hafa verið í forgangi hjá sér. Karin er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Engin ein rétt leið til að vera smart“

Margrét Mist Tindsdóttir, jafnan þekkt sem Maja Mist, lifir og hrærist í tískuheiminum en hún starfar nú sem markaðsstjóri hjá Húrra Reykjavík eftir nokkur ár í tískubransanum í Kaupmannahöfn. Henni hefur alltaf þótt skemmtilegt að klæðast kjólum og pilsum og finnst fjölbreytileikinn það skemmtilegasta við tískuna. Maja Mist er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Reyndi áður fyrr að klæða kynhneigðina af sér

Lífskúnstnernum, tónlistarmanninum og förðunarfræðingnum Úlfari Viktori Björnssyni er margt til lista lagt. Á unglingsárunum var hann að eigin sögn að berjast við innri djöfla og þorði ekki að láta ljós sitt skína en í dag er hann óhræddur við að fara eigin leiðir og vera samkvæmur sjálfum sér. Úlfar Viktor er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Alltaf smá sirkus í mér“

Elísabet Alma Svendsen, eigandi Listval og lífskúnstner mikill, hefur alla tíð haft áhuga á tísku og farið eigin leiðir í persónulegum og einstökum stíl. Meginregla hennar er að líða alltaf vel í því sem hún klæðist. Elísabet Alma er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Myndi frekar vera á tánum en að klæðast gönguskóm

Fyrirsætan Helen Óttarsdóttir hefur gert góða hluti í tískuheiminum og tekið að sér verkefni víða um heiminn. Tískan er órjúfanlegur hluti af starfi hennar og lífi en hún fær gjarnan að heyra að hún sé of fínt klædd fyrir tilefnið og hefur alla tíð neitað að fara í úlpu. Helen er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×