Tíska og hönnun

Labbaði á tískusýningu komin átta mánuði á leið

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Karin Arnhildardóttir er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
Karin Arnhildardóttir er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Aðsend

Stílistinn og tískuskvísan Karin Arnhildardóttir hefur brennandi áhuga á klæðaburði og reynir alltaf að kaupa flíkur sem endast lengi. Stíllinn hennar hefur breyst svolítið á síðustu árum þar sem hún sækir meira í þægindi, sem hún segir ekki alltaf hafa verið í forgangi hjá sér. Karin er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Karin elskar tjáningarformið sem tískan er.Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Hvað það er hægt að tjá sig mikið í gegnum hana. Ég elska líka að fylgjast með nýjum línum frá uppáhalds merkjunum mínum.

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Í augnablikinu er það Replume dúnúlpa úr Aftur. Hlý og passar við allt.

Karin elskar flottar úlpur.Aðsend

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Nei í rauninni ekki. 

Ég hafði meiri tíma í það áður en ég eignaðist barn. Núna gríp ég oftast bara eitthvað þægilegt.
Þægindin eru farin að skipta Karin meira máli.Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Ég myndi segja að stílinn minn sé blanda af vintage og nýjum flíkum en ég reyni oftast að kaupa vistvænt og flíkur sem endast lengi.

Karin reynir að kaupa flíkur sem endast lengi.Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Það sem skiptir mig mestu máli núna eru þægindi en það hefur ekki alltaf verið í forgangi.

Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Instagram, frá fólkinu í kringum mig og umhverfinu.

Innblásturinn kemur úr ýmsum áttum til Karinar.Aðsend

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Það eru alveg nokkrar flíkur sem ég myndi ekki klæðast en það er bara vegna þess að þær eru ekki minn stíll.

Karin hefur alltaf verið með persónulegan og einstakan stíl.Aðsend

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Ég labbaði á tískusýningu Yeoman í fyrra þegar ég var ólétt komin átta mánuði á leið og var í bundnum topp og útvíðum buxum með bumbuna úti. Það er mjög eftirminnilegt.

Karin á tískusýningu Yeoman í fyrra, komin átta mánuði á leið.Aðsend

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Kaupa minna og velja flíkurnar vel. Oft þegar ég kaupi flík í flýti þá enda ég á að nota hana ekki. Annars bara að fylgja þínu eigin innsæi.

Tengdar fréttir

„Engin ein rétt leið til að vera smart“

Margrét Mist Tindsdóttir, jafnan þekkt sem Maja Mist, lifir og hrærist í tískuheiminum en hún starfar nú sem markaðsstjóri hjá Húrra Reykjavík eftir nokkur ár í tískubransanum í Kaupmannahöfn. Henni hefur alltaf þótt skemmtilegt að klæðast kjólum og pilsum og finnst fjölbreytileikinn það skemmtilegasta við tískuna. Maja Mist er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Reyndi áður fyrr að klæða kynhneigðina af sér

Lífskúnstnernum, tónlistarmanninum og förðunarfræðingnum Úlfari Viktori Björnssyni er margt til lista lagt. Á unglingsárunum var hann að eigin sögn að berjast við innri djöfla og þorði ekki að láta ljós sitt skína en í dag er hann óhræddur við að fara eigin leiðir og vera samkvæmur sjálfum sér. Úlfar Viktor er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Alltaf smá sirkus í mér“

Elísabet Alma Svendsen, eigandi Listval og lífskúnstner mikill, hefur alla tíð haft áhuga á tísku og farið eigin leiðir í persónulegum og einstökum stíl. Meginregla hennar er að líða alltaf vel í því sem hún klæðist. Elísabet Alma er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Myndi frekar vera á tánum en að klæðast gönguskóm

Fyrirsætan Helen Óttarsdóttir hefur gert góða hluti í tískuheiminum og tekið að sér verkefni víða um heiminn. Tískan er órjúfanlegur hluti af starfi hennar og lífi en hún fær gjarnan að heyra að hún sé of fínt klædd fyrir tilefnið og hefur alla tíð neitað að fara í úlpu. Helen er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×