Tíska og hönnun

„Myndi ekki vilja láta finna mig dauða í ýmsum flíkum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sylvía Lovetank er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
Sylvía Lovetank er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Aðsend

Búningahönnuðurinn og listamaðurinn Sylvía Dögg Halldórsdóttir, jafnan þekkt sem Sylvía Lovetank, hefur alla tíð verið samkvæm sjálfri sér í fatavali. Hún segir mikilvægast að hlusta á hjartað þegar það kemur að persónulegum stíl en tíska er órjúfanlegur hluti af lífi hennar og starfi. Sylvía Lovetank er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Sylvía fer eigin leiðir í tískunni og er mjög hrifin af yfirhöfnum. Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Skemmtilegast finnst mér sjálfsagt hvernig tískan fer í hringi. Aftur og aftur.

Ég hef alltaf elskað fatnað og skó og mér finnst gaman að tjá mig í klæðavali. Það er hægt að segja svo mikið eða lítið með litum, áferðum, sniðum og mismunandi samsetningum.

Mér finnst tíska ótrúlega áhugaverð og mér finnst sjúklega gaman að fylgjast með straumum hennar í einu og öllu, þó það sé ekki alltaf fyrir mig og ég er alls ekki alltaf í takt við hana.

Sylvía hefur alla tíð elskað föt.Aðsend

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Ég get ekki valið eina flík en ég elska til dæmis allar fallegu yfirhafnirnar mínar frá uppáhalds merkinu mínu AOC Fashion.

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Ég vinn við að velja og hanna fatnað sem búningahönnuður svo það er óhætt að segja að ég eyði miklum tíma í það. Ég hugsa mjög mikið um föt og elska föt mögulega vandræðalega mikið.

Þegar kemur að því að velja föt á sjálfa mig tek ég yfirleitt ákvarðanir um fataval morgundagsins á koddanum kvöldið áður og það er ekki lengi gert.

Hins vegar eru fjórir dagar í hverjum mánuði þar sem ég kemst varla úr húsi og ég bara get alls ekki klætt mig. Ég set allt á hliðina í fataskápnum mínum, ríf allt út úr honum og finnst allt ómögulegt og ógeðslega ljótt og þá er gott að eiga góðan jogging galla á kantinum.

Sylvía segist almennt eiga auðvelt með að velja föt út í daginn, nema fjóra daga í mánuði.Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Bland í poka með remúlaði.

Persónulegur stíll Sylvíu býr yfir fjölbreytni.Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Stíllinn minn eða lack there of hefur verið frekar konsistant í gegnum tíðina myndi ég segja.

Ég hef alltaf verið sjúk í gallaefni, hvíta stuttermaboli, skemmtilega hæla, strigaskó, jogging galla, pelsa og varaliti.

Gallabuxurnar, skórnir og liturinn á vörunum breytist vissulega með tíð og tíma en ég myndi segja þetta vera frekar beisik hjá mér.

Sylvía fær tísku innblástur úr ýmsum áttum án þess þó að leita í eitthvað ákveðið.Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Meðvitað er ég ekki að sækja tísku innblástur í eitthvað ákveðið en ég verð vissulega fyrir áhrifum alls staðar að.

Ég skoða tísku mikið í símanum og svo á ég á sjúklega mikið af vinkonum sem skvísa reglulega yfir sig og við sendum tískumyndir, góðar og slæmar, okkar á milli sjálfsagt daglega.

Sylvía ræðir tískuna mikið við vinkonur sínar. Hér er hún á Toronto Film Festival með þeim Hörpu og Huldísi að frumsýna kvikmyndina Svaninn.Aðsend

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Ég er 100% með boð og bönn. Ég hef ótrúlega sterkar skoðanir þegar kemur að klæðaburði, korter í anal

Ég myndi ekki vilja láta finna mig dauða í ýmsum flíkum en ég þori ekki að telja þær upp hér.
Sylvía segist 100% vera með boð og bönn í tískunni.Aðsend

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Eftirminnilegasta flíkin er sjálfsagt samfestingur sem ég hannaði á sjálfa mig fyrir Cannes Film Festival og lét sauma fyrir hátíðina.

Sérsaumaði samfestingurinn sem Sylvía hannaði sjálf fyrir Cannes Film Festival.Aðsend

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Mikilvægast finnst mér að hlusta á hjartað og dagsformið þegar kemur að fatavali. Vellíðan er lykill. 

Við berum það með okkur þegar okkur líður vel í fötunum okkar og getum þá verið glæsileg í hverju sem er.

Í dag vanda ég valið þegar ég fjárfesti í fatnaði. Ég kaupi mér færri flíkur og góðar. Það er dýrmætt að eiga klassískar flíkur úr góðum efnum sem standast tímann í skápnum sínum. Slíkum flíkum er hægt að raða saman á marga mismunandi vegu ár eftir ár og krydda með skemmtilegum aukahlutum og skarti.

Ég hvet alla til að styrkja íslenska hönnun. Við eigum svo mikið af flottum fatahönnuðum sem eru að gera frábæra hluti. Einnig mæli ég með að fólk kaupi sér föt og skó sem eru framleidd af fullorðnu fólki í góðum aðstæðum.

Sylvía vandar í dag valið þegar hún fjárfestir í fatnaði.Aðsend

Svo get ekki mælt nógu mikið með því að versla notað sem er líka oft betra fyrir budduna.

Að versla notaðar flíkur getur verið svo ótrúlega skemmtilegt og spennandi. Fjársjóðsleit, ég elska það. 

Ef þú finnur flík sem þér finnst falleg en passar ekki mæli ég með að fara með hana til klæðskera og gera hana að þinni.

Ég elska „hagkerfi kvenna“ eins og vinkona mín kallar það, að deila fötum og skiptast á að vera skvísa í sömu flíkinni.

Ég verð einmitt með nytjamarkað á morgun klukkan 13:00 fyrir áhugasama í Stúdíó Lovetank, Fiskislóð 31F, með Tinnu vinkonu minni, þar sem við ætlum að losa okkur við gömul gull.

Sylvía er búningahönnuður og listamaður og eyðir því hverjum einasta degi í kringum föt og tísku.Aðsend

Tengdar fréttir

„Ætlaði sko ekki að falla inn í hópinn“

Tónlistarmaðurinn, stærðfræði séní-inn og lífskúnstnerinn Kjalar söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar í Idolinu í vetur þar sem hann hafnaði öðru sæti. Kjalar hefur einnig vakið mikla athygli fyrir einstakan stíl sinn en hann elskar litríkar flíkur og er að eigin sögn duglegur að ögra sér í fatavali. Kjalar er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Labbaði á tískusýningu komin átta mánuði á leið

Stílistinn og tískuskvísan Karin Arnhildardóttir hefur brennandi áhuga á klæðaburði og reynir alltaf að kaupa flíkur sem endast lengi. Stíllinn hennar hefur breyst svolítið á síðustu árum þar sem hún sækir meira í þægindi, sem hún segir ekki alltaf hafa verið í forgangi hjá sér. Karin er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Engin ein rétt leið til að vera smart“

Margrét Mist Tindsdóttir, jafnan þekkt sem Maja Mist, lifir og hrærist í tískuheiminum en hún starfar nú sem markaðsstjóri hjá Húrra Reykjavík eftir nokkur ár í tískubransanum í Kaupmannahöfn. Henni hefur alltaf þótt skemmtilegt að klæðast kjólum og pilsum og finnst fjölbreytileikinn það skemmtilegasta við tískuna. Maja Mist er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Reyndi áður fyrr að klæða kynhneigðina af sér

Lífskúnstnernum, tónlistarmanninum og förðunarfræðingnum Úlfari Viktori Björnssyni er margt til lista lagt. Á unglingsárunum var hann að eigin sögn að berjast við innri djöfla og þorði ekki að láta ljós sitt skína en í dag er hann óhræddur við að fara eigin leiðir og vera samkvæmur sjálfum sér. Úlfar Viktor er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Alltaf smá sirkus í mér“

Elísabet Alma Svendsen, eigandi Listval og lífskúnstner mikill, hefur alla tíð haft áhuga á tísku og farið eigin leiðir í persónulegum og einstökum stíl. Meginregla hennar er að líða alltaf vel í því sem hún klæðist. Elísabet Alma er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Myndi frekar vera á tánum en að klæðast gönguskóm

Fyrirsætan Helen Óttarsdóttir hefur gert góða hluti í tískuheiminum og tekið að sér verkefni víða um heiminn. Tískan er órjúfanlegur hluti af starfi hennar og lífi en hún fær gjarnan að heyra að hún sé of fínt klædd fyrir tilefnið og hefur alla tíð neitað að fara í úlpu. Helen er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×