Vandræði meistaranna halda áfram Smári Jökull Jónsson skrifar 14. apríl 2023 17:56 Guðrún Arnardóttir í leik með FC Rosengård. Vísir/Getty Sænska meistaraliðið FC Rosengård hefur byrjað nýtt tímabil í sænsku úrvalsdeildinni illa. Í dag tapaði liðið gegn Djurgården og er því aðeins með eitt stig eftir þrjá fyrstu leikina.
Guðrún Arnardóttir er leikmaður FC Rosengård en liðið varð sænskur meistari á síðasta ári og lék í Meistaradeildinni í vetur þar sem liðið féll úr leik eftir riðlakeppnina. Upphafið á nýju tímabili hefur hins vegar ekki verið eins og búist var við. Lið Rosengård byrjaði á að gera jafntefli við Piteå á heimavelli og fékk síðan skell gegn sterku liði Linköping í annari umferð. Í dag mætti Rosengård liði Djurgården á heimavelli síðarnefnda liðsins í Stokkhólmi. Fyrir leikinn var Djurgården með einn sigur eftir tvo leiki en liðið hefur barist í neðri hluta deildarinnar síðustu árin. Hayley Dowd kom heimaliðinu yfir strax í upphafi síðari hálfleiks með marki úr teignum eftir fyrirgjöf og Matilda Plan kom Djurgården í 2-0 á 65. mínútu þegar markvörður Rosengård missti hornspyrnu yfir sig og Plan potaði boltanum inn. Sænska landsliðskonan Olivia Schough minnkaði muninn í uppbótartíma fyrir Rosengård með marki beint úr aukaspyrnu en það dugði ekki til. Lokatölur 2-1 og leikmenn Djurgården fögnuðu vel í leikslok. Liðið situr nú í þriðja neðsta sæti deildarinnar með aðeins eitt stig eftir þrjá leiki. Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Rosengård og lék allan leikinn í miðri vörninni.
Sænski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira