Fótbolti

Hópurinn sem hefur ferðina á EM: Albert og Birkir ekki með en Sævar fær tækifæri

Sindri Sverrisson skrifar
Sævar Atli Magnússon hefur verið að spila vel fyrir Lyngby og er í hópnum.
Sævar Atli Magnússon hefur verið að spila vel fyrir Lyngby og er í hópnum. vísir/Diego

Arnar Þór Viðarsson hefur tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir fyrstu leiki Íslands í undankeppni EM karla í fótbolta. Birkir Bjarnason og Albert Guðmundsson eru ekki í hópnum.

Ísland byrjar undankeppnina á tveimur útileikjum, gegn Bosníu á fimmtudaginn eftir viku og svo við Liechtenstein þremur dögum síðar.

Albert Guðmundsson verður ekki með í för en hann hefur ekki verið í landsliðshópnum síðan í júní 2022. Arnar sagðist í september sama ár hafa verið afar óánægður og svekktur með hugarfar Alberts í júníverkefninu, og því ekki valið hann. Þjálfarinn hringdi í Albert, sem leikið hefur vel með Genoa í ítölsku B-deildinni, í aðdraganda valsins nú en það skilaði sér þó ekki í því að hann væri valinn.

Arnar segir í tilkynningu frá KSÍ vonbrigði að Albert hafi ekki verið „tilbúinn til að koma inn í landsliðið á forsendum liðsins“. Hann mun eflaust útskýra fjarveru Alberts betur þegar hann hittir fjölmiðlamenn á morgun en sú nýbreytni er höfð á að þessu sinni að hópurinn er tilkynntur sólarhring fyrir fund Arnars með fjölmiðlum.

Breiðhyltingurinn Sævar Atli Magnússon, framherji Lyngby, fær tækifæri í hópnum og Dagur Dan Þórhallsson, sem nýverið hélt í atvinnumennsku til Bandaríkjanna, og Nökkvi Þeyr Þórisson úr Beerschot í Belgíu eru í hópi fimm leikmanna sem hafðir eru til vara.

Sá leikjahæsti missti sæti sitt

Alfreð Finnbogason, liðsfélagi Sævars, er í hópnum líkt og í september í fyrra þegar hann spilaði sína fyrstu landsleiki í tvö ár. Þar eru einnig Jóhann Berg Guðmundsson og Sverrir Ingi Ingason sem tóku þátt í sigrinum í Eystrasaltsbikarnum í nóvember eftir meira en árs fjarveru frá landsliðinu. Aron Einar Gunnarsson er áfram í hópnum en missir af leiknum við Bosníu vegna leikbanns.

Leikjahæsti landsliðsmaður Íslands, Birkir Bjarnason, er hins vegar ekki í hópnum eftir að hafa ekki spilað með liði sínu Adana Demirspor síðustu vikur, í kjölfar jarðskjálftans í Tyrklandi. Hann er að reyna að losna frá sínu félagi.

Markmenn:

Rúnar Alex Rúnarsson - Alanyaspor - 20 leikir

Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 4 leikir

Patrik Sigurður Gunnarsson - Viking FK - 3 leikir

Varnarmenn:

Aron Einar Gunnarsson - Al Arabi - 100 leikir, 2 mörk

Hörður Björgvin Magnússon - Panathinaikos - 44 leikir, 2 mörk

Sverrir Ingi Ingason - PAOK - 40 leikir, 3 mörk

Alfons Sampsted - Twente - 14 leikir

Davíð Kristján Ólafsson - Kalmar FF - 13 leikir

Daníel Leó Grétarsson - Slask Wroclaw - 12 leikir

Miðjumenn:

Jóhann Berg Guðmundsson - Burnley - 82 leikir, 8 mörk

Arnór Ingvi Traustason - IFK Norrköping - 45 leikir, 5 mörk

Guðlaugur Victor Pálsson - D.C. United - 32 leikir, 1 mark

Arnór Sigurðsson - IFK Norrköping - 25 leikir, 2 mörk

Jón Dagur Þorsteinsson - OH Leuven - 24 leikir, 4 mörk

Mikael Neville Anderson - AGF - 18 leikir, 2 mörk

Aron Elís Þrándarson - OB - 17 leikir, 1 mark

Ísak Bergmann Jóhannesson - FC Köbenhavn - 17 leikir, 3 mörk

Þórir Jóhann Helgason - Lecce - 16 leikir, 2 mörk

Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg IF - 15 leikir, 1 mark

Mikael Egill Ellertsson - Venezia - 10 leikir

Hákon Arnar Haraldsson - FC Köbenhavn - 7 leikir

Sóknarmenn:

Alfreð Finnbogason - Lyngby - 63 leikir, 15 mörk

Andri Lucas Guðjohnsen - IFK Norrköping - 13 leikir, 3 mörk

Sævar Atli Magnússon - Lyngby - 2 leikir

Leikmenn til vara:

Hjörtur Hermannsson - AC Pisa - 25 leikir, 1 mark

Guðmundur Þórarinsson - OFI - 12 leikir

Dagur Dan Þórhallsson - Orlando City - 4 leikir

Nökkvi Þeyr Þórisson - Beerschot - 1 leikur

Sveinn Aron Guðjohnsen - Eflsborg - 19 leikir, 2 mörk

Íslenski hópurinn kemur saman í Þýskalandi á mánudaginn og þar verður blaðamaður Vísis að sjálfsögðu á staðnum. Hópurinn heldur svo til Bosníu daginn fyrir fyrsta leik sem fram fer í Zenica í Bosníu 23. mars.

Ísland er í riðli með Bosníu, Liechtenstein, Lúxemborg, Slóvakíu og Portúgal, og spilar sína fyrstu heimaleiki í júní þegar Slóvakía og Portúgal koma í heimsókn. Tvö efstu lið riðilsins komast áfram á EM í Þýskalandi sumarið 2024.

Líklegt að Ísland hafi umspil sem varaleið

Ef að Ísland kemst ekki áfram úr sínum riðli í undankeppninni gæti lokastaða í Þjóðadeildinni í fyrra skilað liðinu í umspil sem fram fer á næsta ári. 

Öll liðin sem unnu sinn riðil í Þjóðadeildinni eru örugg um að komast í umspilið í mars 2024, þurfi þau á því að halda eftir undankeppnina. Ísland endaði hins vegar í 2. sæti síns riðils, í B-deildinni, og er því ekki alveg öruggt.

Í umspilinu verður leikið í þremur mótum; einu með fjórum liðum úr A-deild Þjóðadeildarinnar, einu með fjórum liðum úr B-deild og einu með fjórum liðum úr C-deild. Fyllt verður í þessi umspilsmót með næstu liðum í Þjóðadeildinni ef of mörg í viðkomandi deild komast beint á EM í gegnum undankeppnina.

Þar sem að reikna má með því að langflest liðanna sextán í A-deild Þjóðadeildarinnar komist beint á EM í gegnum undankeppnina í ár, eða þá nógu mörg af þeim liðum sem náðu betri árangri en Ísland í B-deildinni, er því vel mögulegt að Ísland muni eiga umspilið sem varaleið eftir undankeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×