Fótbolti

Pogba mætti of seint og er ekki í hóp í kvöld

Smári Jökull Jónsson skrifar
Pogba hefur lítið spilað á tímabilinu til þessa vegna meiðsla.
Pogba hefur lítið spilað á tímabilinu til þessa vegna meiðsla. Vísir/Getty

Paul Pogba verður ekki í leikmannahópi Juventus gegn Freiburg í Evrópudeildinni í kvöld. Pogba er nýkominn aftur eftir langvarandi meiðsli en var tekinn úr leikmannahópnum vegna agabrots.

Paul Pogba gekk til liðs við Juventus síðasta sumar á frjálsri sölu frá Manchester United. Hann hefur þó lítið komið við sögu á tímabilinu vegna meiðsla og aðeins nýlega kominn aftur á ferðina.

Nú er Pogba búinn að koma sér í vandræði og það ekki í fyrsta sinn á ferlinum. Hann mætti of seint á liðsfund Juventus fyrir leikinn gegn Freiburg í Evrópudeildinni og Massimiliano Allegri tilkynnti Pogba í kjölfarið að hann yrði ekki í leikmannahópnum í kvöld.

Pogba hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum Juventus á tímabilinu en hann sneri aftur eftir meiðslin undir lok febrúar. Juventus leikur gegn Freiburg á heimavelli í kvöld en um er að ræða fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×