Viðskipti innlent

Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Garðar Svavarsson er formaður Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda.
Garðar Svavarsson er formaður Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda. Sigurjón Ólason

Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt.

Fjallað var um það í fréttum Stöðvar 2 að fiskimjölsverksmiðjur hafa undanfarnar vikur mátt þola skerðingar á raforku, þó minnst yfir nóttina.

„Við erum núna að keyra bæði á rafmagni og olíu. Við erum ennþá að kljást við einhverjar skerðingar,“ segir Garðar Svavarsson, formaður Félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda.

Verksmiðjurnar, sem eru tíu talsins í landinu, hafa einkum verið að vinna úr kolmunna síðustu vikur en eru núna að sigla inn í loðnuvertíðina.

Úlfar Linnet er forstöðumaður viðskiptaþjónustu Landsvirkjunar.Sigurjón Ólason

„Álagið er búið að vera svo mikið á kerfið, svona yfir daginn, þá hefur þurft að skerða skerðanlega notendur. Þannig að þetta er staðreynd. En við vonum nú að það sé að draga úr þessu,“ segir Úlfar Linnet, forstöðumaður viðskiptaþjónustu Landsvirkjunar.

-Eru það vonbrigði að þurfa að keyra á olíu?

„Það eru alltaf vonbrigði að þurfa að keyra á olíu,“ svarar Garðar.

Í fyrra var ástandið skýrt með lélegri vatnsstöðu í lónum. Núna er staðan þar allt önnur og betri. Samt þarf að skerða.

„Það er búið að vera mikil eftirspurn eftir raforku á Íslandi. Og eins og staðan er núna, þá erum við allavega mjög nálægt því að vera uppseld,“ segir Úlfar.

Frá Vopnafirði. Þar rekur Brim fiskimjölsverksmiðju.Skjáskot/Stöð 2

Talsmaður fiskimjölsframleiðenda treystir sér ekki til að nefna tölur um hve mikilli olíu sé verið að brenna.

„Þegar verksmiðjurnar þurfa að keyra á fullu á olíu, þá fer gríðarlegt magn. En við erum að ná að nýta rafmagnið með núna. Þannig að þetta er ekki eins og það var í fyrra,“ segir Garðar.

Viðskiptastjóri Landsvirkjunar bendir á að rafvæðing fiskimjölsverksmiðjanna hafi til þessa sparað gríðarlega olíunotkun.

„Við höfum afhent, held ég, fjórar teravattstundir frá aldamótum, sem held ég að samsvari 277 þúsund tonnum af olíu, sem hafa þá sparast.

Maður getur svolítið horft á þetta eins og tvinnbíl. Þannig að bræðslurnar eru svolítið eins og tvinnbíll sem hefur keyrt meira en níu af hverjum tíu ferðum á rafmagni,“ segir Úlfar.

Frá Norðfirði. Séð yfir fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar.Einar Árnason

-En er þetta komið til með að vera, svona ástand, að þið þurfið alltaf að skipta yfir í olíuna?

„Nei. Við erum að vinna að breyttu fyrirkomulagi með Landsvirkjun, sem á að tryggja það að verksmiðjurnar geti verið með rafmagnið, fyrst og fremst,“ svarar formaður félags fiskimjölsframleiðenda.

-Er kjarni málsins kannski sá að það þarf að virkja meira?

„Eftirspurnin er að aukast. Þannig að ef við ætlum að mæta henni, þá er það leiðin sem þarf að fara,“ svarar forstöðumaður viðskiptaþjónustu Landsvirkjunar.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa

Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa til öflunar meiri orku til að geta staðið við markmið um orkuskipti. Olíubrennsla að undanförnu vegna skorts á umfram raforku þurrki út árangur rafknúinna bifreiða í loftslagsmálum frá árinu 2010.

„Augljóslega er þetta ekki gott“

Forsætisráðherra segir stefnt að því að stækka ákveðnar virkjanir sem þegar eru starfandi á Íslandi. Innviðaráðherra segir svíða að orkubú Vestfjarða sé að kaupa olíu til kyndingar fyrir fleiri hundruð milljónir þar sem endurnýjanleg orka hefur verið skert.

Áhöfn olíuskips á útopnu að þjóna loðnubræðslum

Viðbótar olíuflutningar til loðnuverksmiðja til að mæta óvæntri raforkuskerðingu jafngilda farmi 550 olíubíla af stærstu gerð. Umferð olíutrukka á þjóðvegunum mun þó ekki aukast því eina olíuskip Íslendinga fer í verkefnið.

Orkustjórar í ritdeilu um raforkuskort

Stjórnendur tveggja stærstu orkufyrirtækja landsins, Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur, eru komnir í opinbera ritdeilu á Vísi um raforkuskort í landinu. Þetta eru þeir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, og Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri vatnsafls hjá Landsvirkjun. Bæði fyrirtækin eru alfarið í opinberri eigu; Landsvirkjun í eigu ríkisins en Orkuveitan að mestu í eigu Reykjavíkurborgar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×