Landsvirkjun

Fréttamynd

Steypubíllinn kominn úr ánni

Steypubíll sem lenti í Þjórsá í gærkvöldi hefur verið fjarlægður úr ánni. Þetta segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar en ökumaður bílsins fór út af brú á Þjórsárdalsvegi nærri Sultartangavirkjun. Bíllinn er í eigu Steypustöðvarinnar samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu.

Innlent
Fréttamynd

Meira afl fyrir orkuna

Líkur eru á að raforkuþörf samfélagsins verði ekki uppfyllt á allra næstu árum. Þetta eru ekki ný sannindi, þau hafa endurspeglast í umræðum um orkuöryggi og í spám Orkustofnunar og Landsnets.

Skoðun
Fréttamynd

Sér Blöndu­ós eflast með byggðalínu og virkjunum

Oddviti Húnabyggðar vonast til að orka Blönduvirkjunar muni í vaxandi mæli nýtast til atvinnuuppbyggingar á Blönduósi með nýrri byggðalínu. Hann hvetur jafnframt til þess að meira verði virkjað á Blöndusvæðinu sem fyrst.

Innlent
Fréttamynd

„Ljóst að deilunni er ekki lokið“

Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað.

Innlent
Fréttamynd

Virkjunar­leyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga.

Innlent
Fréttamynd

Kári beislaður við Vaðöldu

Framkvæmdir eru nú hafnar við vindorkuver Landsvirkjunar á Vaðöldu. Þetta er stórframkvæmd í orkuöflun með umtalsverð áhrif. Framleiðslugeta vindorku er meira á veturna en á sumrin sem er einmitt öfugt við vatnsaflsvirkjanir. Kerfislega vinna því vatn og vindur vel saman. Á Vaðöldu er verið að reisa 28 vindmyllur sem er ætlað að framleiða raforku, en hvað þýðir það nákvæmlega?

Skoðun
Fréttamynd

Svona gekk að flytja vindmyllurnar

Fyrstu flutningar á risastórum vindmyllum í nótt um þjóðvegi Suðurlands gengu framar vonum og tók það flutningalestina um fimm klukkustundir að aka farminum frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.

Innlent
Fréttamynd

Beygjur og hring­torg mesta á­skorunin fyrir vindmyllulestina

Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmyllugarðs Landsvirkjunar við Vaðölduver, segir hafa gengið mjög vel að flytja hluta vindmylla í Vaðölduver í nótt. Lögregla segir beygjur og hringtorg mestu áskorun en flutningarnir hafi gengið vel í nótt. 

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta vindmyllulestin um Suður­land í nótt

Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið fær tuttugu milljarða frá Lands­virkjun

Aðalfundur Landsvirkjunar samþykkti í dag tillögu stjórnar um 165 milljóna bandaríkjadala arðgreiðslu í ríkissjóð, sem á núverandi gengi er um 20 milljarðar króna. Samanlagður arður vegna rekstraráranna 2021 til 2025 nemur um 110 milljörðum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þor­láks­höfn

Fyrsta skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, vindorkuver Landsvirkjunar við Sultartanga, kom til Þorlákshafnar í kvöld. Það var flutningaskipið Idunn frá skipafélaginu Torcargo sem sigldi með farminn frá Rotterdam en um borð voru hlutir sem samsvara um einni og hálfri vindmyllu.

Innlent
Fréttamynd

Fögnum úr­bótum án afslátta

Ferli leyfisveitinga vegna nýrra virkjana er komið í óefni og full ástæða til að fagna því að nú skuli loks stigin markviss skref til úrbóta. Allt of flókið og tímafrekt ferli er engum til góða, það hefur þvert á móti neikvæð áhrif á framþróun og atvinnuuppbyggingu.

Skoðun
Fréttamynd

Ógnir núna ekkert á við á­hættu fram­tíðar

Við lifum tíma aukinnar óvissu í alþjóðamálum. Birtingarmyndirnar eru ýmsar, svo sem vopnuð átök milli ríkja, tollastríð sem skekja efnahagslíf heimsins, aukin samfélagsskautun og bakslag í mannréttindamálum.

Skoðun
Fréttamynd

Frá há­sæti orkudrottningar

Á rúmlega 60 ára starfsævi sinni hefur orkufyrirtæki þjóðarinnar unnið mjög ötullega að ýmiss konar umhverfismálum, náttúruvernd og loftslagsmálum. Við hjá Landsvirkjun gerum okkur mjög vel grein fyrir áhrifum starfsemi okkar á umhverfið og leitumst við að lágmarka þau með öllum ráðum.

Skoðun
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Þungaflutningarnir með þeim mestu á Ís­landi

Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.

Innlent
Fréttamynd

Fram­kvæmdir auka losun en að­eins tíma­bundið

Loftslagsbókhald Landsvirkjunar sýnir að losun vegna orkuvinnslu fyrirtækisins var 3,1 gramm koldíoxíðsígilda á hverja unna kílówattstund á árinu 2025. Losunin er með því lægsta sem þekkist innan orkugeirans.

Skoðun
Fréttamynd

Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar?

Lækkun verðs á raforku til húshitunar hefur lengi verið baráttumál sveitarfélaga á köldum svæðum. En af hverju hefur árangurinn ekki verið meiri? Þetta verður meginumræðuefnið á ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem ber heitið „Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Hverju er hægt að breyta” og fer fram á morgun, miðvikudaginn 18. mars.

Skoðun
Fréttamynd

Losun Lands­virkjunar jókst vegna virkjana­fram­kvæmda

Framkvæmdir við Vaðölduver og Hvammsvirkjunar leiddu til þess að losun Landsvirkjunar á gróðurhúsalofttegundum jókst um tíu prósent á milli ára í fyrra. Losun vegna orkuvinnslu er enn vel undir viðmiðum um kolefnishlutleysi orkufyrirtækja og á meðal þeirra minnstu í orkugeiranum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Endursamningar lykillinn að stórbættum fjár­hag

Ísland er eyja og orkukerfið okkar tengist ekki öðrum orkukerfum. Staðreyndin er samt sú að við seljum rafmagnið okkar á alþjóðlegum markaði. Viðskiptavinir okkar eru stór og öflug alþjóðleg fyrirtæki með starfsemi um allan heim.

Skoðun
Fréttamynd

Ís­lenskt raf­magn á al­þjóð­legum markaði

Þótt Ísland sé eyja í norðri ferðast afurðir raforkunnar okkar um alla heimsbyggðina. Með íslenskri raforku eru búin til verðmæti sem finnast í bílum á götum Berlínar, í vindmyllum á Norðursjó, í sólarsellum á Spáni og í rafstáli í Japan.

Skoðun