Viðskipti innlent

Loðnumælingar tölu­vert undir væntingum

Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands (GINR) fyrir komandi loðnuvertíð er upp á ríflega 105 þúsund tonn. Í tilkynningu frá Hafrannsóknarstofnun kemur fram að ráðgjöfin byggi á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum í september síðastliðnum sem reyndust töluvert undir væntingum.

Viðskipti innlent

Eig­endur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar

Hjónin Markús Hauksson og Bríet Guðrúnardóttir opnuðu nýlega kaffihúsið Róst að Suðurlandsbraut 8 þar sem Te og kaffi var áður til húsa. Þau tóku við rekstri kaffihússins Kaffi Laugalækjar fyrir rúmu ári síðan og segja að töluverð samlegðaráhrif verði með kaffihúsunum þó það séu ólíkar áherslur. 

Viðskipti innlent

Hlað­varparar segja fjölmiðla­nefnd stunda glassúrgerð

Landsliðið í hlaðvarpi hefur skrifað grein sem er öðrum þræði svar til Elvu Ýrar Gylfadóttur framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar sem senn lætur af störfum. Öll segjast þau hafa fengið bréf, sum hver mörg bréf, frá nefndinni þar sem hún hvetur þau til að skrá sig sem fjölmiðla hjá nefndinni. Að öðrum kosti fái þau sektir.

Viðskipti innlent

Hús­leit hjá Öl­gerðinni

Samkeppniseftirlitið hefur hafið húsleit hjá Beru hf., móðurfélagi Ölgerðarinnar, vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar á samkeppnislögum. Embætti héraðssaksóknara aðstoðaði við húsleitina.

Viðskipti innlent

Skims opnar í Kringlunni

Skims, undirfatamerki í eigu raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, opnar tímabundið útibú í Kringlunni. Eigendur Mathilda standa að opnuninni en um er að ræða afar vinsælt vörumerki.

Viðskipti innlent

Uggandi yfir af­stöðu VR

Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni.

Viðskipti innlent

Vill að þak verði sett á á­lagningu olíu­fé­laga

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, kallar eftir því að olíufélögin lækki álagningu sína og að stjórnvöld stígi sömuleiðis inn með því að lækka virðisaukaskatt á ný. Bensínlítri kostar nú 253 krónur á höfuðborgarsvæðinu en víða á landsbyggðinni allt að 274 krónur samkvæmt vef Gasvaktarinnar. Lítri af dísilolíu kostar nú víðast hvar um 300 krónur.

Viðskipti innlent

Tæp­lega þrjá­tíu sagt upp

Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðará við Rauðarárstíg í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á hótelinu næstu mánuði og stendur til að opna undir nýju merki á næsta ári.

Viðskipti innlent

Á­kveða í kvöld hvort kjara­samningum verði sagt upp

Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA.

Viðskipti innlent

Klíníkin sótti 300 milljónir króna

Klíníkin Ármúla lauk í september 300 milljóna króna hlutafjáraukningu og náðist þar með markmið aukningarinnar að fullu. Auk þess seldi félagið eigin hluti fyrir um 23 milljónir króna til 13 starfsmanna, sem eignuðust samtals tveggja prósenta hlut í félaginu. Fyrr á árinu bættust jafnframt níu starfandi læknar í hluthafahópinn.

Viðskipti innlent

Enn eitt gjald­þrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni

Skiptum er lokið á þrotabúi Veislunnar ehf., sem rak samnefnda veisluþjónustu á Seltjarnarnesi um árabil. Ekki ein einasta króna fékkst upp í kröfur, sem námu tæpum 216 milljónum króna. Ekki er langt síðan greint var frá mörg hundruð milljóna króna gjaldþrotum félaga í eigu Helga Magnúsar Hermannssonar, sem einnig átti Veisluna.

Viðskipti innlent

Kaupir Mal­biks­stöðina á fimm milljarða

Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Seljandi er félag í eigu Vilhjálms Þórs Matthíassonar. Heildarvirði Malbikstöðvarinnar í viðskiptunum er 5.080 milljónir króna.

Viðskipti innlent

Tuttugu sagt upp í fisk­vinnslu í Reykja­nes­bæ

Tuttugu starfsmönnum í fiskvinnslu Premium of Iceland í Reykjanesbæ hefur verið sagt upp. Félagið segir óvissu um að kenna vegna aðgerða heilbrigðisnefndar Suðurnesja, 38 hafi starfað hjá fiskvinnslunni í upphafi árs en þeim hafi fækkað jafnt og þétt. Félagið segir málið varða fleiri fyrirtæki og segir hundruð starfa undir.

Viðskipti innlent