Innlent

Borgin boðar breytingar í Skeifunni: „Auðvitað þarf að laga þetta“

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Skeifan er vinsælt en jafnframt umdeilt svæði, sérstaklega að mati vegfarenda. 
Skeifan er vinsælt en jafnframt umdeilt svæði, sérstaklega að mati vegfarenda.  Vísir/Egill

Reykjavíkurborg ætlar að ráðast í breytingar á samgönguleiðum í Skeifunni þar sem allir þvælast fyrir öllum og gangandi vegfarendur eiga erfitt með að komast leiðar sinnar. Varaborgarfulltrúi Viðreisnar segir svæðið eftir að breytast mikið á næstu árum. Vegfarendur eru ekki par sáttir með stöðuna í dag og einn segist beinlínis hata Skeifuna.

Samkvæmt tillögu að bættu umferðaröryggi sem Pawel Bartoszek, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, lagði fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í dag er gert ráð fyrir nokkrum breytingum.

„Þó svo að Skeifan muni breytast á næstu árum þá finnst mér brýnt að skoða stöðuna eins og hún er í dag, huga að öryggi gangandi og hjólandi hérna í Skeifunni og að einhverju leyti líka akandi,“ segir Pawel.

Hann leggur til að svokölluðum beygjuvasa verði komið fyrir til að auðvelda aðgengi að bílastæðinu við verslun Elko og Krónunnar, þar sem mikið öngþveiti skapast oft, gönguleiðin frá Grensásvegi að verslun Hagkaupa verði bætt og minna skorin, og aðgengi fyrir rafmagnshlaupahjól bætt auk þess sem mögulega væri hægt að koma upp stæði fyrir slík tæki.

Beygjuvasi, bættar gangstéttir og betri aðstæður fyrir rafhlaupahjól eru í tillögunni. Grafík/Sara Rut

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti að vísa tillögunni í vinnu við umferðaröryggisáætlun og verður síðar ákveðið í hvaða forgang hún fer. Um sé að ræða breytingar sem ættu að vera nokkuð auðveldar í framkvæmd, svo sem að hækka gangstéttir.

„Ef það yrði tekið vel í þetta þá gengur þetta í gegnum svona ársferli og myndi gerast kannski þarnæsta sumar eða þar þarnæsta en þetta gæti auðvitað tekið smá tíma því við erum búin að ákveða hvað við gerum næsta sumar,“ segir Pawel.

Pawel Bartoszek, varaborgarfulltrúi Viðreisnar og fulltrúi í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Vísir/Egill

„En svo er auðvitað mjög margt skemmtilegt fram undan hér á Skeifusvæðinu og það er búið að samþykkja rammaskipulag sem gerir ráð fyrir heilmikilli uppbyggingu. Þannig svæðið á eftir að breytast mikið á næstu árum,“ segir hann enn fremur.

Svæðið bjóði upp á marga möguleika og spennandi tímar séu fram undan.

„Svo sannarlega, vegna þess að þetta er auðvitað vinsælt verslunarsvæði, þó það sé auðvitað stundum smá kaos þegar kemur að umferðinni. En við vitum að Reykjavíkurbúar kunna að meta það og viljum bara leita leiða til þess að gera það enn þá betra,“ segir Pawel.

Hér má sjá svæðið sem að helstu breytingarnar verða á. Vísir/Egill

Það flækir þó málin að borgarlandið nær ekki lengra en að Hagkaupum og Rúmfatalagerinn, annað er einkalóð. Pawel bendir þó á að samflokkskona hans, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, hafi átt í viðræðum undanfarið við rekstraraðila á svæðinu.

Eins og bandarísk borg

Fréttastofa tók stöðuna á nokkrum vegfarendum í dag og höfðu þeir ýmislegt að segja um hvað þeim fyndist um svæðið.

„Ég hata Skeifuna. Ég hata Skeifuna svo innilega það er ekki hægt að labba neins staðar. Ég meina þetta liggur alla leið upp í Ármúla, ég var að reyna að fara í Hljóðfærahúsið í gær, það kom í ljós að ég var vitlausu megin við götuna og ég þurfti að labba yfir fimm hundruð metra af bílastæðum. Mér finnst þetta ömurlegt, þetta er eins og ég ímynda mér að sé að vera í bandarískri borg,“ sagði Kári Fjóluson Thoroddsen.

Kári Fjóluson Thoroddsen var allt annað en sáttur.

„Mér finnst að það ætti bara að vera í lögum að það sé hægt að labba í gegnum hverfi almennt,“ sagði hann enn fremur.

Júlía Dröfn Júlíusdóttir sagði þá svæðið of þröngt.

„Það er mjög erfitt að keyra hérna, maður finnur fyrir því sérstaklega þegar maður situr inni í bíl með foreldrum sínum og svona. Það er svo mikið af fólki og þetta er svo þröngt svæði en að labba hérna er bara mjög fínt, mér finnst það mjög kósí. Það er allt nálægt og bara þægilegt umhverfi,“ sagði Júlía en bætti við að gangstéttirnar væru ekki frábærar.

„Sérstaklega þegar maður er að labba svona um, þá er snjór út um allt og voðalega lítið gert í því. Fyrir fólkið sem er að keyra, þá er bara mokað,“ segir hún.

Júlía Dröfn Júlíusdóttir sagði þægilegt að labba um í Skeifunni, þó snjór og lélegar gangstéttir flæktu vissulega fyrir.

Svavar Smárason sagði að um væri að ræða vandamál sem er ekki nýtt af nálinni.

„Umferðin er búin að þyngjast ansi mikið hérna síðustu fimm árin, það er alveg ljóst. Svo koma náttúrulega svona stórar verslanir eins og Elko og Krónan þannig það þrengir að, vissulega,“ sagði hann. Ýmislegt væri hægt að gera til að leysa málin. 

„Ég myndi byrja á að tala við alla sem eru með fyrirtæki hérna í kring, hvaða hugmyndir þau eru með og kannski spyrja fólkið sem er hérna hvað er hægt að gera. Bara leysa þetta.“

Svavar Smárason sagði umferðina hafa þyngst mikið.

Edda Erlends sagði það nokkuð flókið að ganga um Skeifuna og taldi að hægt væri að bæta úr málunum.

„Eins og færðin er núna þá er allt dálítið erfitt. En Skeifan er nú einu sinni eins og Skeifan er og það er ekki bara flókið fyrir gangandi vegfarendur, þetta er mjög flókið fyrir akandi vegfarendur líka vegna þess að Skeifan er öll ein lóð þannig það gildir hægri réttur og fólk áttar sig ekkert á því,“ segir hún.

„Auðvitað þarf að laga þetta, það er ekkert hægt að hafa þetta beinlínis svona en það er hins vegar svolítið flókið.“

Edda Erlends sagði flókið að ferðast í Skeifunni.

Tengdar fréttir

Múgur og marg­menni við opnun Elko og Krónunnar í Skeifunni

Elko og Krónan opnuðu ný útibú í Mylluhúsinu í Skeifunni klukkan 9 í morgun. Áður en verslanirnar opnuðu var mikill fjöldi fólks mættur í röð fyrir utan Elko enda hundrað eintök af Playstation 5 til sölu í versluninni auk fjölda tilboða vegna opnunarinnar. 

Bónus lengir opnunar­tíma og gefur grísnum yfir­halningu

Matvörurisinn Bónus hefur gert breytingar á útliti Bónusgríssins og þeirri leturgerð sem notast er við í firmamerki verslananna. Breytingarnar eru gerðar samhliða lengingu á opnunartíma verslana sem taka gildi í dag sem felur meðal annars í sér að sjö Bónusverslanir verða framvegis opnar til klukkan átta á kvöldin.

Gríðarleg uppbygging íbúðarhúsnæðis áætluð á Suðurlandsbraut

Fyrirhugað er að byggja allt að fimm hundruð íbúðir og sex þúsund fermetra af atvinnuhúsnæði við Suðurlandsbraut og Ármúla. Rífa á iðnaðarhúsnæði sem fyrir er á lóðinni en Orkuhúsið fær að standa. Borgarstjóri vonast til að hægt verði að hefja framkvæmdir á næstu misserum.

Húseigendur á móti íbúðum í Skeifunni

Reykjavíkurborg kynnir nú breytingar á skipulagi Skeifunnar sem fela í sér að íbúðir verði í blandaðri byggð í hverfinu. Fasteignaeigendur segja forsendur ekki ljósar og spyrja hvers vegna ekki sé frekar reynt að nýta sérstöðu Skeifunnar sem verslunarsvæði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×