Innlent

Ekki verið rætt af alvöru að svipta Megas heiðurslaunum í ár

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Megas er á heiðurslaunum og er um æviskipan að ræða. Engin dæmi eru um að fólk hafi verið svipt heiðurslaunum en verði það lagt til þarf Alþingi að samþykkja tillöguna. 
Megas er á heiðurslaunum og er um æviskipan að ræða. Engin dæmi eru um að fólk hafi verið svipt heiðurslaunum en verði það lagt til þarf Alþingi að samþykkja tillöguna. 

Heiðurslaunum listamanna verður úthlutað í ár þrátt fyrir að kerfið hafi verið gagnrýnt harðlega undanfarið. Í fyrsta sinn hefur verið óskað eftir tilnefningum frá almenningi. Margir gagnrýndu að tónlistarmaðurinn Megas væri enn á listanum, þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að fjarlægja neinn af listanum í ár að sögn formanns allsherjar- og menntamálanefndar.

Mikil umræða skapaðist í kringum heiðurslaun listamanna í vor þegar þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu til að mynda fram frumvarp um að leggja niður heiðurslaun listamanna, þar sem ekki væri samfélagslegur ávinningur af kerfinu. Menningarmálaráðherra boðaði þá miklar breytingar á öllu kerfi listamannalauna en gagnrýndi frumvarpið.

Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, segir málið hafa verið rætt innan nefndarinnar.

„Við veltum því mikið fyrir okkur í fyrra hvort þörf væri á að breyta lögunum og í hið minnsta verklaginu í kringum þessa veitingu. Niðurstaðan okkar er að nefndin sem slík er ekki að leggja til breytingar á lögum um heiðurslaun en við erum að nálgast verkefnið með aðeins breyttum hætti,“ segir Bryndís.

Helsta breytingin í ár er að fólk getur sent inn tilnefningar um einstaklinga sem þeir telja að eigi heima á listanum. Samkvæmt lögum má veita allt að 25 listamönnum heiðurslaun en fjórir hafa fallið frá á síðustu tveimur árum og engum var bætt við í fyrra. Þannig er mögulegt að bæta allt að fjórum einstaklingum á listann í ár.

Hægt er að senda inn tilnefningar til hádegis á morgun og verður síðan óskað eftir umsögnum frá ráðgefandi nefnd.

„Í kjölfarið munum við svo kanna hvort við getum komist að einhverri niðurstöðu um að það séu einhverjir aðilar sem eru óumdeildir þannig að nefndin geti sameinast um einhverjar tillögur, en það er ekkert gefið fyrr en það liggur fyrir,“ segir Bryndís.

Gagnrýnt að Megas sé á listanum

Fyrir ákvörðun nefndarinnar í fyrra var það sömuleiðis gagnrýnt að tónlistarmaðurinn Megas væri á listanum í ljósi ásakana um kynferðislegt ofbeldi. Vísir greindi frá því að skiptar skoðanir væru um það innan allsherjar- og menntamálanefndar um hvort það væri forsvaranlegt að hann væri á lista yfir valinkunna heiðurslaunalistamenn eftir ásakanirnar.

Niðurstaðan var þó sú að Megas yrði áfram á listanum en um æviskipan er að ræða og eru engin dæmi um að fólk hafi verið svipt heiðurslaunum.

„Það hefur ekki verið rætt af neinni alvöru tillaga um að taka einhvern af listanum en að sjálfsögðu hefur ýmislegt verið rætt á fundum nefndarinnar,“ segir Bryndís aðspurð um hvort einhverjar breytingar verði í ár.

Hún bendir þá á að verklagi hafi verið breytt með þeim hætti að listinn verði ekki lagður fram til atkvæðagreiðslu á Alþingi nema að breytingar verði gerðar.

„Ef að við komumst að niðurstöðu um það að viljum gera einhverjar breytingar þá munum við leggja fyrir þingið þær breytingar, það er að segja ný nöfn eða ef til þess kæmi að fólk væri að leggja til að einhverjum yrði vikið af listanum,“ segir Bryndís.

Mögulegt er að með tilnefningum almennings muni það liðka fyrir að fleiri bætist við á listann.

„Ef við getum komist að einhverri niðurstöðu um að einhver sé óumdeildur og eigi örugglega heima á þessum lista og það sé mikil eining um það innan allsherjar- og menntamálanefndar, þá gæti farið svo að við myndum koma með tillögur um það,“ segir Bryndís en horft verði til fleiri þátta en aðeins afreka á sviði lista.

Nefndin fundar um málið á morgun eftir að allar tilnefningar hafa borist og gerir Bryndís ráð fyrir að þau fundi aftur á þriðjudag.

Hér fyrir neðan má sjá heiðurslaunalistann frá árinu 2020 en nöfn þeirra sem hafa látist síðan eru skáletruð. 

1. Bubbi Morthens
2. Erró
3. Friðrik Þór Friðriksson
4. Guðbergur Bergsson
5. Guðrún Ásmundsdóttir
6. Guðrún Helgadóttir
7. Gunnar Þórðarson
8. Hannes Pétursson
9. Hreinn Friðfinnsson
10. Jón Ásgeirsson
11. Jón Nordal
12. Jón Sigurbjörnsson
13. Jónas Ingimundarson
14. Kristbjörg Kjeld
15. Kristín Jóhannesdóttir
16. Magnús Pálsson
17. Matthías Johannessen
18. Megas
19. Steina Vasulka
20. Vigdís Grímsdóttir
21. Vilborg Dagbjartsdóttir
22. Þorbjörg Höskuldsdóttir
23. Þorgerður Ingólfsdóttir
24. Þráinn Bertelsson
25. Þuríður Pálsdóttir


Tengdar fréttir

Boðar miklar breytingar á listamannalaunum

Menningar­mála­ráð­herra ætlar að gera miklar breytingar á öllu kerfi lista­manna­launa. Hún setur sig al­farið á móti nýju frum­varpi Sjálf­stæðis­manna og finnst mál­flutningur þeirra sorg­legur.

Megas eftir sem áður á heiðurs­launum lista­manna

Tónlistarmaðurinn Megas verður áfram á heiðurslaunum listamanna en til greina kom að hann yrði sviptur laununum vegna ásakana um kynferðisofbeldi. Ekki verður fleirum bætt á lista yfir þá sem þiggja heiðurslaun listamanna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×