Menning

Al­þingi í klípu vegna Megasar­mála

Jakob Bjarnar skrifar
Ásakanir á hendur Megasi hafa sett þingmenn sem eiga sæti í allsherjar- og menntamálanefnd í verulega klípu. Nokkrir þeirra vilja henda Megasi af lista.
Ásakanir á hendur Megasi hafa sett þingmenn sem eiga sæti í allsherjar- og menntamálanefnd í verulega klípu. Nokkrir þeirra vilja henda Megasi af lista.

Meðal dagskrárliða á fundi allsherjar- og menntamálanefndar (amen) í gær og aftur í dag eru heiðurslaun listamanna.

Mjög skiptar skoðanir eru innan nefndarinnar hvað skuli gera varðandi Megas sem er á lista yfir þá sem þiggja heiðurslaun en eftir að viðtal birtist í Stundinni við konu sem sakar Megas um kynferðisofbeldi. Í ljósi þess þykir ýmsum, þar á meðal nefndarmönnum, það ótækt að Megas sé á heiðurslaunum listamanna.

Í Stundinni segir að Bergþóra Ein­ars­dótt­ir hafi til­kynnt meint brot Megas­ar og Gunn­ars Arn­ar Jónssonar kenndan við hljómsveitina Súkkat, til lög­reglu strax ár­ið 2004, en gögn­in fund­ust ekki aft­ur í mála­skrá lög­reglu. „Ár­ið 2011 lagði hún fram form­lega kæru en frek­ari rann­sókn fór aldrei fram, þeir voru aldrei kall­að­ir fyr­ir og mál­ið fellt nið­ur þar sem það var tal­ið fyrnt, enda skil­greint sem blygð­un­ar­sem­is­brot. Nið­ur­stað­an var kærð til rík­is­sak­sókn­ara sem taldi mál­ið heyra und­ir nauðg­un­ar­á­kvæð­ið en felldi það einnig nið­ur á grund­velli einn­ar setn­ing­ar.“

Allsherjar- og menntamálanefnd veltir þessum málum nú fyrir sér og á í standandi vandræðum með það enda er það afar flókið. En samkvæmt heimildum Vísis verður reynt að koma í veg fyrir að það komi fyrir þingið sjálft en sérstaklega þætti þingheimi það illt við að eiga ef ef beðið yrði um sundurliðun þannig að þingið þyrfti að greiða atkvæði um hvern og einn á listanum. 

Leitað að tveimur til þremur listamönnum til að fylla hópinn

23 eru nú á heiðurslaunum en meðal þess sem nefndin lítur á sem verkefni sitt er að finna til tvo sem setja má á listann en heiðurslaun listamanna eru veitt allt að 25 listamönnum árlega. Þó uppi séu skiptar skoðanir á þessu fyrirbæri þá munu menn, ef þeir sjá fram á að fá ekki lögum breytt, berjast fyrir „sínum mönnum“ en heiðurslaunin og hverjir þau hlutu voru löngum undirorpin flokkspólitískum hrossakaupum.

 Í lögum segir að þeir einir geti notið heiðurslauna sem hafa varið starfsævi sinni eða verulegum hluta hennar til liststarfa eða skarað fram úr við listsköpun sína eða ef störf þeirra að listum hafa skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóðavettvangi.

„Forseti Alþingis skipar nefnd þriggja manna sem allsherjar- og menntamálanefnd leitar umsagnar hjá um þá listamenn sem til greina koma að njóta launanna skv. lögum nr. 66/2012 um heiðurslaun listamanna.“

Nokkrir nefndarmanna vilja Megas út

Í nefndinni eiga sæti Bryndís Haraldsdóttir (formaður), Jóhann Friðrik Friðriksson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Eyjólfur Ármannsson, Jódís Skúladóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Logi Einarsson en áheyrnarfulltrúi er Sigmar Guðmundsson.

Eftir því sem Vísir kemst næst er afstaða nefndarmanna til þessa máls þverpólitísk. Nokkrir eru helst á því að víkja beri Megasi af lista og þar með svipta hann heiðurslaununum. 

En meðal spurninga sem nefndarmenn spyrja sig er hvort myndast geti skaðabótaskylda við það að taka Megas af listanum?

Þá að teknu tilliti til þess að um æviskipan er að ræða, engin dæmi eru um að fólk hafi verið svipt heiðurslaunum, en ekkert segir um það í lögum að þeir sem þiggi heiðurslaun þurfi að vera vammlausir. Og ekki er um mál að ræða sem hefur verið afgreitt af hálfu dómskerfisins þannig að ákvörðunin hlyti að byggjast á ásökunum sem ekki hafa hlotið meðferð réttarkerfisins.

Betlað og bísast í bænum

DV tók fréttaviðtal við Megas af því tilefni og birti undir fyrirsögninni: „Það þýðir ekki að betla og bísast í bænum“. Þar segist Megas ekki hafa heyrt annað en fólk vilji óska honum til hamingju með það. 

DV ræddi við Megas í desember 2003 þegar spurðist að hann myndi hljóta heiðurslaun.

„Kannski fæ ég bréf á mánudaginn, en þangað til verð ég að lifa samkvæmt því að eiga ekki neitt,“ sagði Megas við það tilefni. Blaðamaður DV, sem kallar Megas meistara, og spyr hvort meta megi þetta sem svo að Megas fái nú „loksins“ viðurkenningu fyrir störf sín. „Það hefur alltaf virst eins og það séu einhverjir verndarmúrar þarna. Ég veit ekki hvort það sé hægt að kalla það viðurkenningu frá fólki þó að maður fái laun frá hinum svokölluðu fulltrúum þess.“

Heiðurslaun listamanna eru veitt listamanni að fullu til sjötíu ára aldurs og skulu vera þau sömu og starfslaun listamanna eru á hverjum tíma. Eftir sjötugt eru þau 80% af starfslaunum. Starfslaun listamanna í fyrra voru rúmlega 400 þúsund krónur á mánuði eða tæpar fimm milljónir króna yfir árið.

Þeir sem eru á heiðurslaunum listamanna

Þeir sem voru á lista yfir heiðurslistamenn þjóðarinnar voru eftirfarandi en Jón Sigurbjörnsson og Vilborg Dagbjartsdóttir féllu frá á árinu.

1. Bubbi Morthens
2. Erró
3. Friðrik Þór Friðriksson
4. Guðbergur Bergsson
5. Guðrún Ásmundsdóttir
6. Guðrún Helgadóttir
7. Gunnar Þórðarson
8. Hannes Pétursson
9. Hreinn Friðfinnsson
10. Jón Ásgeirsson
11. Jón Nordal
12. Jón Sigurbjörnsson
13. Jónas Ingimundarson
14. Kristbjörg Kjeld
15. Kristín Jóhannesdóttir
16. Magnús Pálsson
17. Matthías Johannessen
18. Megas
19. Steina Vasulka
20. Vigdís Grímsdóttir
21. Vilborg Dagbjartsdóttir
22. Þorbjörg Höskuldsdóttir
23. Þorgerður Ingólfsdóttir
24. Þráinn Bertelsson
25. Þuríður Pálsdóttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×