Þjóðverjar á leið heim þrátt fyrir sigur gegn Kosta Ríka

Sindri Sverrisson skrifar
Þjóðverjar eru úr leik á heimsmeistaramótinu þrátt fyrir sigur gegn Kosta Ríka.
Þjóðverjar eru úr leik á heimsmeistaramótinu þrátt fyrir sigur gegn Kosta Ríka. Vísir/Getty

Þýskaland er úr leik á heimsmeistaramótinu í Katar þrátt fyrir sigur á Kosta Ríka í frábærum leik í kvöld. Þjóðverjar gerðu sitt en þar sem Spánn tapaði á sama tíma fyrir Japan þá falla Þjóðverjar úr keppni með slakari markatölu en Spánverjar.

Leikurinn byrjaði vel fyrir þá þýsku því Serge Gnabry kom þeim yfir á 10.mínútu en þá hafði Þýskaland sótt frá upphafi leiks.

Staðan í hálfleik var 1-0 en í síðari hálfleik fóru hlutirnir heldur betur að gerast.

Yeltsin Tejeda jafnaði leikinn í 1-1 á 58.mínútu og tólf mínútum síðar kom Juan Vargas Kosta Ríka yfir. Þar sem Japan var þá 2-1 yfir gegn Spáni þýddi þessi staða að bæði Spánn og Þýskaland voru á leið heim.

Þjóðverjar voru hins vegar ekki lengi að snúa leiknum sér í vil. Kai Havertz jafnaði metin í 2-2 á 73.mínútu, aðeins fimm mínútum eftir að hann kom inn sem varamaður. Havertz skoraði síðan sitt annað mark á 85.mínútu áður en Niclas Fullkrug kom Þýskalandi í 4-2 á 90.mínútu.

Lokatölur 4-2 og það þýddi að Þýskaland þurfti jafntefli í leik Japans og Spánar til að fara uppfyrir Japan á markatölu. Það mark kom aldrei og Þjóðverjar sátu eftir með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira