Gakpo sjóðheitur og Holland tók efsta sætið

Sindri Sverrisson skrifar
Cody Gakpo afrekaði að skora í öllum leikjum Hollands í riðlakeppninni og fagnar hér marki gegn Katar í dag.
Cody Gakpo afrekaði að skora í öllum leikjum Hollands í riðlakeppninni og fagnar hér marki gegn Katar í dag. Getty/Mike Hewitt

Holland tryggði sér sigur í A-riðli HM karla í fótbolta með auðveldum og öruggum 2-0 sigri gegn gestgjöfum Katar í lokaumferð riðilsins í dag.

Hollendingar munu því mæta liðinu sem endar í 2. sæti B-riðils en þar ráðast úrslitin í kvöld, þegar England mætir Wales og Bandaríkin mæta Íran.

Senegalar fylgja Hollendingum upp úr A-riðlinum eftir að hafa unnið Ekvador, 2-1.

Cody Gakpo kom Hollandi yfir í dag með sínu þriðja marki á mótinu en hann skoraði í öllum leikjum Hollands í riðlakeppninni. Hollendingar höfðu sundurspilað lið Katara áður en Gakpo fékk boltann og skoraði neðst í hægra hornið, frá vítateigsboganum.

Hollendingar höfðu algjöra stjórn á leiknum og bættu við öðru marki snemma í seinni hálfleik þegar Frenkie de Jong var fyrstur á vettvang og kom boltanum yfir marklínuna, eftir að skot Memphis Depay af stuttu færi var varið.

Holland skoraði eitt mark til viðbótar sem dæmt var af vegna hendi á Gakpo, og varamaðurinn Steven Berghuis komst aftur nálægt því að skora þegar hann skrúfaði boltann í þverslána með fallegu skoti í uppbótartíma.

Holland endaði með sjö stig í riðlinum en Katarar skoruðu aðeins eitt mark á mótinu og fengu ekkert stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira