Ca­semiro skaut Brasilíu í sex­tán liða úr­slit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Yann Sommer kom engum vörnum við þegar Casemiro lét vaða.
Yann Sommer kom engum vörnum við þegar Casemiro lét vaða. Matthias Hangst/Getty Images

Brasilía er komin í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 1-0 sigur á Sviss. Miðjumaðurinn Casemiro skaut Brasilíu áfram með marki þegar lítið var eftir af venjulegum leiktíma.

Fyrri hálfleikur var ekki mikið fyrir augað og staðan markalaus í hálfleik. Síðari hálfleikur var svipaður en Vinícius Junior kom þó boltanum í netið á 65. mínútu leiksins. Eftir að markið var skoðað kom í ljós að Richarlison var rangstæður í aðdraganda marksins og markið því dæmt af.

Staðan var markalaus allt þangað til á 83. mínútu þegar varnartengiliðurinn Casemiro skoraði glæsimark. Boltinn barst á Vinícius Jr. úti á vinstri vængnum, hann lagði boltann á Rodrygo sem var rétt fyrir utan teig. Þaðan fór boltinn fyrir fætur Casemiro sem var vinstra megin í teignum, hann „slæsaði“ boltann upp í samskeytin fjær og staðan orðin 1-0 Brasilíu í vil.

Fleiri urðu mörkin ekki og sigurmark Casemiro þýðir að Brasilía er komið áfram í 16-liða úrslit. Staðan í G-riðli er þannig að Brasilía er í 1. sæti með 6 stig, Sviss er í 2. sæti með 3 stig á meðan Kamerún og Serbía eru með 1 stig hvort þegar aðeins ein umferð er eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira