Bale bjargaði stigi fyrir Wales

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gareth Bale þrumar boltanum í net og skorar fyrsta mark Wales á HM í 64 ár.
Gareth Bale þrumar boltanum í net og skorar fyrsta mark Wales á HM í 64 ár. Berengui/Getty Images

Wales lék í kvöld sinn fyrsta leik á HM í fótbolta frá árinu 1958. Það var vel við hæfi að Gareth Bale, einn besti íþróttamaður í sögu landsins, hafi tryggt þeim stig en Wales gerði 1-1 jafntefli við Bandaríkin.

Gareth Bale og félagar í velska landsliðinu spila langþráðan leik á HM þegar þeir mæta Bandaríkjamönnum en þetta fyrsti HM-leikur Wales síðan á HM í Svíþjóð árið 1958.

Fótboltinn var kannski ekki frábær en mark Bandaríkjanna í fyrri hálfleik var það. Christian Pulisic átti gott hlaup upp í gegnum miðjan völlinn og stakk boltanum inn fyrir vörn Wales þar sem Timothy Weah kom askvaðandi og renndi boltanum framhjá varnarlausum Wayne Hennessey í marki Wales.

Reyndist þetta eina mark fyrri hálfleiks en á sama tíma fóru alls fjögur gul spjöld á loft. Segja má að það hafi lýst leiknum ágætlega.

Hinn stóri og stæðilegi Kieffer Moore kom inn af bekk Wales í hálfleik og við það lifnaði aðeins yfir sóknarleik Walesverja. Bæði lið höfðu fengið fín færi en þegar tíu mínútur lifðu leiks fékk Wales víti þegar brotið var á Gareth Bale innan vítateigs. Bale fór sjálfur á punktinn og gjörsamlega lúðraði boltanum í netið við mikinn fögnuð Walesverja í stúkunni.

Þrátt fyrir langan uppbótartíma líkt og í öðrum leikjum mótsins þá tókst hvorugu liðinu að knýja fram sigurmark og lauk leiknum því með 1-1 jafntefli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira