Menning

„Myndirnar væru ekki eins og þær eru ef ég væri enn inni í skápnum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Rakel Tómasdóttir er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.
Rakel Tómasdóttir er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Vísir/Vilhelm

Listakonan Rakel Tómasdóttir hefur verið sjálfstætt starfandi síðastliðin ár og er í grunnin menntuð í grafískri hönnun. Viðfangsefni hennar einkennast gjarnan af konum og kvenlíkamanum en hún hefur einnig ferðast ein víða um heiminn og sótt innblástur í ævintýri ferða sinna. Rakel Tómas er viðmælandi þessa þáttar af Kúnst.

Þáttinn má sjá í spilaranum hér fyrir neðan:

Klippa: KÚNST - Rakel Tómasdóttir

Rakel er búsett í miðbæ Reykjavíkur og er með vinnuaðstöðu heima hjá sér. Dagarnir eru fjölbreyttir í hennar lífi en umhverfið mótar hana mikið sem og hennar lifaða reynsla.

„Maður lendir náttúrulega í alls konar hlutum og ég er búin að upplifa ýmislegt síðan ég kom út úr skápnum fyrir næstum um tíu árum síðan,“ segir Rakel og bætir við: „Þessar myndir kannski sýna það alveg og þessar myndir væru ekki eins og þær eru ef ég væri enn þá inni í skápnum eitthvað að þykjast vera straight, þannig það hefur klárlega áhrif.“

Rakel segir síðastliðinn áratug hafa mótað listsköpun sína mikið.Vísir/Vilhelm

Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.


Tengdar fréttir

Skemmtilegt þegar fólk fær að gera eitthvað meira en bara að horfa

Þórdís Erla Zoega hefur átt viðburðaríkt ár þar sem hún var meðal annars valin bæjarlistarmaður Seltjarnarnesbæjar, setti upp sýningu í Kaupmannahöfn og opnaði einkasýninguna Spaced Out í Berg Contemporary. Þórdís Erla er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

KÚNST: Kvennakraftur í kirkjugarði

„Ég vildi fá að hafa smá femíniska slagsíðu í þessu,“ segir listamaðurinn Þrándur Þórarinsson um verk sem hann málaði af Þorbjörgu Sveinsdóttur, ljósmóður og kvenréttindabaráttukonu, og Guðrúnu Oddsdóttur, fyrstu manneskjunni sem var jörðuð í Hólavallagarði. Þrándur er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

KÚNST: Á­kvað að verða mynd­listar­maður þegar hann var tíu ára

Sigurður Sævar Magnúsarson er listamaður sem segir listina hafa fylgt sér nánast allt sitt líf. Hann festi nýverið kaup á gamla Argentínuhúsinu á Barónsstíg þar sem hann hyggst setja upp ýmsa menningar- og listviðburði á næstu árum. Sigurður Sævar er viðmælandi vikunnar í nýjasta þætti af KÚNST.

KÚNST: „Við erum öll í grunninn nakin“

Fjöllistakonan Júlíanna Ósk Hafberg er hugfangin af mjúkri, berskjaldaðri og kvenlægri orku en vinnustofa hennar og verk endurspegla það með sanni. Júlíanna Ósk notast við fjölbreytta miðla í listsköpun sinni, smíðar sína eigin ramma, opnaði vinnustofu í miðbænum og lætur ekkert stoppa sig en hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Listasýningar með ömmu í æsku kveiktu á sköpunargleðinni

Lágmyndir hafa heillað listamanninn Pétur Geir Magnússon frá ungum aldri og í dag hefur hann fært þær inn í nútímalegt form í listsköpun sinni. Pétur Geir, sem er búsettur og starfræktur í Stokkhólmi, er með bakgrunn í grafískri hönnun en kallar sig hagnýtan myndlistarmann og nálgast listaverk sín á einstakan hátt. Pétur Geir er viðmælandi í nýjasta þætti af KÚNST, sem er jafnframt fyrsti þáttur í seríu tvö.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×