Erlent

Sam­staða náðist um lofts­lags­ham­fara­sjóð

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Tinna Hallgrímsdóttir, formaður Ungra umhverfissinna.
Tinna Hallgrímsdóttir, formaður Ungra umhverfissinna.

Tinna Hallgrímsdóttir, formaður ungra umhverfissinna segir samstöðu hafa náðst um loftslagshamfarasjóð á COP27 ráðstefnunni í Egyptalandi. Beint samþykki sé þó eftir. Einhver tregða sé einnig til staðar hvað varðar samkomulag um samdrátt í losun.

Tinna er annar tveggja fulltrúa ungra umhverfissinna á loftslagsráðstefnunni COP 27 en á fimmta tug íslenskra fulltrúa sækja ráðstefnuna.

Í samtali við fréttastofu segir Tinna að það hafi náðst söguleg samstaða um það að stofna loftslagshamfarasjóð. Sjóðurinn muni veita fjármagn til ríkja sem eru í viðkvæmri stöðu vegna afleiðinga loftslagsbreytinga, þarna sé verið að tala um flóð, þurrka og fellibyli. Ekki sé enn ljóst hvaða ríki falli undir kröfur sjóðsins.

„Sjóðurinn er vegna tapa og tjóna sem eru afleiðingar loftslagsbreytinga sem er ekki hægt að aðlagast. Þetta er búin að vera krafa lengi og sérstaklega hávær núna,“ segir Tinna.

Mikilvægt að stíga ekki skref til baka 

Þrátt fyrir samstöðuna sem ríki um fyrrnefndan sjóð segir Tinna pattstöðu ríkja í nokkrum málaflokkum.

„Þarna er verið að ræða um að við séum ekki að fara að stíga skref til baka frá því sem var samþykkt á COP26 í Glasgow í fyrra. Að við séum jafn sterk í orðalaginu um að takmarka hnattræna hlýnun við 1,5 gráðu. Fólk vill hafa inni í textanum að hnattræn hlýnun þurfi að ná hámarki í seinasta lagi árið 2025,“ segir Tinna.

Hún nefnir að einnig sé á um orðalag varðandi hvernig eigi að „fasa niður“ notkun á kolum en í samþykktinni sé enn sama orðalag og samþykkt var í Glasgow.

„Það er búið að vera mikið ákall núna frá mörgum ríkjum núna, meðal annars Noregi að þarna sé einnig átt við olíu og gas,“ segir Tinna.

„Við verðum bara að sjá hvað gerist“

Að hennar sögn vill Sádí Arabía að þessi klausa sé tekin út úr samþykktinni. Þau haldi því fram að málið snúist einungis um losun yfirhöfuð en ekki ákveðna losunarvalda.

Annað innan ráðstefnunnar vilji herða orðalag klausunnar úr því að fasa niður í að fasa út ásamt því að hún innihaldi allt jarðefnaeldsneyti.

„Mismunandi sjónarhorn hafa stangast á hérna í svo rosalega langan tíma. Þegar við náum þessari samstöðu um loftslagshamfarasjóðinn þá fannst manni svona eins og það gæti keyrt aðra hluti áfram. Á móti kemur er enn þá mikil tregða hvað varðar samdrátt í losun og sömuleiðis hvað varðar jarðeldsneyti þannig það er farið að hægjast aðeins á þessum anda og hraða um það að klára þetta sem mér fannst vera áður. Við verðum bara að sjá hvað gerist,“ segir Tinna.

Hún segir lokasamþykkt þingsins birtast í kvöld og vonandi verði allt samþykkt í kjölfarið. 


Tengdar fréttir

Hét nýjum degi fyrir Amason­frum­skóginn

Luiz Inacio Lula da Silva, nýkjörinn forseti Brasilíu, hét því að nýr dagur væri runninn upp fyrir Amasonfrumskóginn og að hann ætlaði að taka á ólöglegu skógarhöggi þar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×