Fótbolti

Pabbinn segir PSG leiða kapphlaupið um næstu vonarstjörnu Brasilíu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Næsta ofurstjarnan í fótboltanum?
Næsta ofurstjarnan í fótboltanum? vísir/Getty

Þrátt fyrir að vera nýorðinn sextán ára gamall er Brasilíumaðurinn Endrick undir smásjá allra stærstu knattspyrnufélaga heims.

Hann hóf að leika fyrir aðallið Palmeiras í október á þessu ári og hefur skorað þrjú mörk í fyrstu sex aðalliðsleikjum sínum en Endrick skoraði 165 mörk í 169 leikjum fyrir yngri lið Palmeiras áður en hann var kallaður upp í aðalliðið.

Faðir kappans segir franska stórveldið PSG vera eina félagið úr Evrópu sem sé búið að setja sig í samband við Palmeiras en hann viti til þess að fleiri stór lið úr Evrópu hafi áhuga á að klófesta son sinn.

Í Brasilíu er strax byrjað að líkja Endrick við markahrókana Romario og Ronaldo en líkt og margir af bestu knattspyrnumönnum Brasilíu í gegnum tíðina kemur Endrick úr sárafátækt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×