Fótbolti

Messi og félagar búa á háskólaheimavist í Katar

Smári Jökull Jónsson skrifar
Lið Argentínu hélt til Katar í dag en þeir verða ekki á fimm stjörnu hóteli eins og mörg önnur lið á mótinu.
Lið Argentínu hélt til Katar í dag en þeir verða ekki á fimm stjörnu hóteli eins og mörg önnur lið á mótinu. Vísir/Getty

Lið Argentínu er spáð velgengni á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu en þeir héldu af stað til Katar í dag. Á meðan flest landslið á mótinu munu hafa aðsetur á fimm stjörnu lúxushótelum völdu Argentínumenn að fara öðruvísi leið.

Heimsmeistaramótið í Katar hefst á sunnudaginn og þar eru Argentínumenn í riðli með Póllandi, Mexíkó og Sádi Arabíu. Lionel Messi og félögum er spáð góðu gengi á mótinu og telja margir að nú sé komið að því að Messi komist á stall með landa sínum Diego Maradona og færi þjóðinni sjálfan heimsmeistaratitilinn.

Það skortir ekki lúxushótelin í Katar og flest liðin sem keppa á heimsmeistaramótinu hafa valið sér eitt slíkt til að dvelja á þann tíma sem þau eru í Katar. Kröfur liðanna um aðstæður eru oftar en ekki ansi ítarlegar en Argentínumenn ákváðu að fara aðra leið hvað varðar gistingu en önnur lið.

Forsvarsmenn argentínska knattspyrnusambandsins völdu nefnilega að aðsetur liðsins yrði á heimavist háskólans í Katar. Aðstæður þar eru vissulega góðar en aðalástæða þess að þeir velja heimavistina frekar en lúxushótel er sú að þeir vilja geta eldað matinn sinn samkvæmt argentínskum hefðum.

„Við heimsóttum heimavistina í fjölmörg skipti og völdum að vera þar, ekki bara því þar eru frábærar aðstæður, heldur einnig vegna þess að þar er pláss fyrir asado utandyra,“ sagði talsmaður knattspyrnusambandsins í samtali við Daily Mail.

Asado er nokkurs konar grill sem Argentínumenn nota gjarnan til að elda kjöt yfir opnum eldi en það er einmitt það sem Argentínu menn ætla sér að gera í Katar. Krafan um að geta notað asado var ofarlega á forgangslistanum hjá Messi og félögum og á háskólaheimavistinni verður það mögulegt.

„Liðið okkar er það besta í heimi og eiga skilið besta nautakjötið,“ sagði talsmaður sambandsins en argentínskar steikur þykja herramannsmatur víðsvegar um heim.

„Við viljum að leikmönnum líði eins og þeir séu heima hjá sér á meðan þeir dvelja í Katar og þetta er besta leiðin til að gera það. Við sjáum til þess að þeir fái bragð að heiman á sama tíma og þeir einbeita sér að fótboltanum.“

Aðstæðurnar í háskólanum í Katar eru svo sem ekkert slor. Þar eru 90 herbergi, nútímaleg íþróttaaðstaða, sundlaug í fullri stærð og knattspyrnuleikvangur þar sem er pláss fyrir 10.000 áhorfendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×