Íslenski boltinn

Óskar Hrafn ekkert svaka­lega á­nægður með Ísak: Ef ég vil það þá segi ég það

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ísak Snær Þorvaldsson fagnar einu mark sinna í sumar með félögum sínum í Breiðabliki.  Dagur Dan Þórhallsson hoppar upp á hann en Gísli Eyjólfsson og Kristinn Steindórsson koma aðvífandi.
Ísak Snær Þorvaldsson fagnar einu mark sinna í sumar með félögum sínum í Breiðabliki.  Dagur Dan Þórhallsson hoppar upp á hann en Gísli Eyjólfsson og Kristinn Steindórsson koma aðvífandi. Vísir/Vilhelm

Ísak Snær Þorvaldsson átti magnað fyrsta tímabil með Breiðabliki og var kjörinn besti ungi leikmaður Bestu deildarinnar af Stúkunni.

Ísak Snær var með fjórtán mörk í Bestu deildinni en lagði auk þess upp þrettán önnur mörk með því að gefa stoðsendingu (9), fiska víti sem gefur mark (3) eða frákasti af skoti sínu (1).

Ísak Snær mætti í viðtal við Gunnlaug Jónsson í lokaþætti Stúkunnar og fór þar yfir ýmis mál eins og félagsskipti sín yfir í Breiðablik. Gunnlaugur forvitnaðist fyrst um síðasta vetur þegar Ísak var hjá skoska félaginu Livingston.

„Það var planið að halda sér úti en síðan á endanum fannst mér best koma hingað heim í Blikana. Þeir voru með stórt markmið og gott lið þannig að ég ákvað að koma hingað,“ sagði Ísak Snær Þorvaldsson en komu mörg önnur lið til greina?

„Það var einhver áhugi í Noregi og svo æfði ég náttúrulega með Livingston og svo var það Bristol Rovers með Joey Barton því ég þekkti hann. Til þess að taka næsta skref áfram þá fannst mér ég þurfa að taka skrefið aftur á bak líka og koma hingað heim. Mér fannst Blikar vera rétta liðið,“ sagði Ísak Snær.

Klippa: Stúkan: Viðtal við Ísak Snæ

Gunnlaugur spilaði brot úr viðtali fótbolta.net við Ísak sem var tekið í byrjun janúar. Ísak segir þar að Blikar hafi spilað skemmtilegasta fótboltann og hafi átt að taka titilinn sumarið 2021 frekar en Víkingar.

„Þú segir þarna að Óskar [Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks] sé að tönglast á því að við ætlum að vera tvöfaldir meistarar. Var hann sáttur við þetta að þú skyldir koma út með þetta strax,“ spurði Gunnlaugur Jónsson.

„Hann var ekkert eitthvað svakalega ánægður með það og vildi halda því niðri. Ef ég vil eitthvað þá segi ég það, sama hvort það sé í sjónvarpinu eða í samtali við fólk út í bæ. Okkur langaði að verða tvöfaldir meistarar, vinna bikarinn og deildina en því miður tókst bara að vinna deildina. Vonandi taka þeir þetta tvöfalt á næsta ári,“ sagði Ísak Snær.

Það má horfa á allt viðtalið hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×