Liver­pool tryggði sætið í sex­tán liða úr­slitum með stæl

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mohamed Salah fagnar marki sínu í kvöld.
Mohamed Salah fagnar marki sínu í kvöld. EPA-EFE/MAURICE VAN STEEN

Lærisveinar Jürgen Klopp unnu öruggan 3-0 útisigur á Ajax í Meistaradeild Evrópu karla í fótbolta og tryggðu sér þar með farseðilinn í sextán liða úrslit keppninnar.

Það tók liðið úr Bítlaborginni dágóða stund í kvöld og brenndi Darwin Núñez af algjöru dauðafæri áður en Mohamed Salah kom gestunum yfir undir lok fyrri hálfleiks eftir sendingu Jordan Henderson.

Liverpool gerði svo út um leikinn snemma í síðari hálfleik þegar Núñez bætti upp fyrir mistökin og skallaði hornspyrnu Andrew Robertson í netið. Aðeins þremur mínútum síðar lagði Salah boltann á Harvey Elliott sem skoraði með góðu skoti og staðan orðin 3-0 gestunum í vil. Varð hann þar með fyrsti táningurinn í sögu Liverpool til að skora í tveimur Meistaradeildarleikjum í röð.

Sigurinn endanlega tryggir sæti Liverpool í 16-liða úrslitum keppninnar og þá gæti liðið náð toppsætinu fari svo að það leggi Napoli að velli í lokaumferð A-riðils. 

Napoli, sem vann Rangers 3-0 í kvöld, er á toppi riðilsins með 15 stig á meðan Liverpool er í 2. sæti með 12 stig og Ajax þar fyrir neðan með þrjú stig á meðan Rangers er án stiga.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira