Bíó og sjónvarp

Svartur á leik verður að þríleik

Elísabet Hanna skrifar
Gerðar verða tvær myndir í viðbót.
Gerðar verða tvær myndir í viðbót. Mummi Lú.

Kvikmyndin Svartur á leik kom út fyrir tíu árum, nú er hún komin aftur í sýningu ásamt því að tilkynnt hefur verið að tvær nýjar tengdar myndir verði gerðar. Í þeim nýju mun sama teymið og gerði myndina vera við stjórn og undirheimar Íslands verða áfram í aðalhlutverki. 

Fyrri myndin er hugsuð sem forsaga eða undanfari Svartur á leik og hefst árið 1975 þegar fyrsti dómur fyrir eiturlyfjasölu féll. Hún verður frumsýnd árið 2024 og sú seinni ári síðar. Sú seinni verður framhald og gerist í nútímanum og verður birtingarmynd undirheima í dag.

Hér að neðan má sjá stiklu fyrir fyrstu myndina:

Óskar Þór Axelsson leikstjóri tilkynnt það að Svartur á leik verður að þríleik sem hann mun leikstýra og skrifa handritið ásamt Stefáni Mána. Framleiðslufyrirtækin Filmus og Zik Zak, innlend dreifing Sena og alþjóðleg dreifing Scanbox verða einnig með. Andri Sveinsson, Arnar Knútsson, Heiðar Guðjónsson og Þórir Snær Sigurjónsson verða áfram framleiðendur.

Hér að neðan má sjá þegar rithöfundurinn Stefán Máni hleypti áhorfendum bak við tjöldin á persónusköpun sinni fyrir Svartur á leik.

Svartur á leik var fyrsta mynd Óskars Þórs í fullri lengd. Hann mætti í viðtal á Bylgjunni á dögunum þar sem hann sagðist vera mjög spenntur fyrir verkefninu. Einnig að sjá myndina aftur og hitta hópinn sem kom að gerð hennar.


Tengdar fréttir

Myndaveisla: Svartur á leik snýr aftur

Í gær fór fram tíu ára afmælissýning kvikmyndarinnar Svartur á leik. Myndin er farin aftur í sýningu í Smárabíó. Í gær var tilkynnt að framleiða eigi tvær kvikmyndir í viðbót og verður myndin því hluti af þríleik.

Nær ekki að hrista undirheimana af sér

Sextánda bók Stefáns Mána, Nautið, er komin út. Í bókinni blandast saman tvö sögusvið í gegnum aðalsöguhetju bókarinnar, íslenskur bóndabær og undirheimar Reykjavíkur.

Svartur á leik: Glæpirnir á bak við söguna

Óupplýst bankarán, umfangsmikil tryggingasvik og eitt stærsta fíkniefnamál Íslandssögunnar er á meðal þess sem byggt er á í kvikmyndinni Svartur á leik. Andri Ólafsson dustar rykið af gömlum sakamálum sem urðu innblástur fyrir þessa vinsælustu kvikmynd landsins um þessar mundir. Þeir sem eiga eftir að sjá myndina ættu kannski að hætta að lesa núna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×